Page 1 of 1

Bilun í e36

PostPosted: Wed 03. Aug 2011 10:14
by rockstone
Hann drepur á sér bara alltíeinu þegar maður er að keyra hann, en ef maður er í gír fer hann aftur í gang(ef maður er á ferð).

Edit
Getur verið nokkrir hlutir

Vaccum leki
Knastásskynjari sé að detta út
ofl.

Re: Bensíndæla farin?

PostPosted: Thu 04. Aug 2011 09:58
by rockstone
Einhver sem getur leyft mér að prufa knastásskynjara sem er í lagi, M50B25 Non-Vanos

Re: Bilun í e36

PostPosted: Thu 04. Aug 2011 10:15
by Zed III
taktu hann bara úr sambandi og athugaðu hvort þetta lagist.

Re: Bilun í e36

PostPosted: Thu 04. Aug 2011 13:52
by rockstone
bíllinn hætti að fara í gang áðan,
bilun lýsir sér þannig, þú varst að keyra og allt í einu duttu allir mælar niður,
eins og hann hefði drepið á sér, en ef maður snýr lyklinum til að starta,
þá finnur maður að hann er enþá í gangi,
svo alltíeinu poppar allt inn aftur, ljósin koma í mælaborðið eins og þegar maður svissar á og hverfa eins og þau eiga að gera og bíllinn heldur áfram,
svo í morgun fór að vera styttra á milli að þessi gerðist, og núna fer hann ekki í gang.

Re: Bilun í e36

PostPosted: Thu 04. Aug 2011 15:16
by Jón Ragnar
Gæti verið jörðin á rafgeymi / mótor?

Re: Bilun í e36

PostPosted: Thu 04. Aug 2011 18:46
by bErio
Væri góð byrjun að skoða jörðina á tölvunni, motor og rafgeymi

Re: Bilun í e36

PostPosted: Fri 05. Aug 2011 20:46
by rockstone
hafði loksins tíma til að kíkja á bílinn búinn að vera vinna svo mikið.
Fyrsta sem ég fann út er að bensíndælan fer ekki í gang, semsagt caput. Vantar bensíndælu sem fyrst ef einhver er með til sölu!

Re: Bilun í e36

PostPosted: Sat 06. Aug 2011 00:13
by GunniT
ég á bensíndælu úr e46 323 ef það gengur...