Page 1 of 1

Lyklar fyrir E39 árgerð 1999

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 22:59
by Andrynn
Með bílnum mínum fékk ég þessa tvo lykla

Image



Litli lykillinn virkar til að aflæsa bílnum og ræsa hann, en sá stóri er bara hægt að
aflæsa honum með því að stinga honum í hurðina en ekki ræsa hann.
Ég tók eftir því þegar ég var að ryksuga bílinn að batteríið úr fjarstýringunni hafði
dottið úr henni, en það er ekki nóg svo að hann fari í gang og fjarstýringin virkar
ekki heldur.

Þarf að tengja bílinn við tölvu svo að það sé hægt að nota þennan lykil, nota
fjarstýringuna og til að ræsa hann, eða er nóg að kaupa nýtt batterí?

Re: Lyklar fyrir E39 árgerð 1999

PostPosted: Thu 14. Jul 2011 01:07
by HaffiG
Ef ég skil þig rétt, þá er sennilega ekki tölvukubbur í stóra lyklinum sem gerir það að verkum að hann virkar bara til að opna hurðina en ekki til að starta.

Re: Lyklar fyrir E39 árgerð 1999

PostPosted: Thu 14. Jul 2011 09:55
by IceDev
Getur opnað stóra lykilinn og kannað hvort að það sé svona kubbur í honum.

Image

Það sem mig grunar að hafi gerst er að lykilinn hafi opnast á einhverjum tímapunkti, kubburinn og batteríið dottið úr og týnst.

Hinsvegar ef þessi kubbur er til staðar þá er gæti það verið batteríið, en mér þykir það mjög ólíklegt þar sem að þú getur ekki startað bílnum með þeim lykli.