Page 1 of 1

ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 12:24
by SteiniDJ
Sælir,

Var að þvo E39 M5 í gær og fer svo út í það að rífa diffuserinn undan. Þetta var smá bras, púststútarnir allt of stórir og því þurfti smá átak til þess að ná diffusernum af. Það tekst og ég fer að pússa stúta eins og enginn sé morgundagurinn.

Sest svo upp í bíl 2 tímum seinna og keyri burt, en tek eftir því að hraðamælirinn er úti, spólvörnin af, ABS og (!) ljós í gangi. Ásamt þessu öllu kemur villumelding á mælaborðið sem er óljós útaf pixel-vandamáli og ásamt því er hún á þýsku. Eftir því sem ég best veit er þessi melding "Rücklicht prüfen" og ætti því ekki að tengjast þessu. Samt eru öll afturljós virk og ég held að hann sé bara eitthvað að bulla í mér.

Er ekkert sérlega kátur með þetta, en ekki alveg viss hvað er að. Grunar að þetta sé annaðhvort skynjari eða ABS heili sem er farinn að fíflast í mér, þó get ég ekki fullyrt það. Þó er þetta vandamál sem auðvelt er að lifa við eins og staðan er núna. Svolítið tæpt að vita ekki hversu hratt maður ekur samt... :lol:

Öll ráð væru vel þegin!

Kv, Steini

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 13:04
by slapi
Allar líkur á að ABS skynjarinn hjá þér v/m aftan sé bilaður

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 13:35
by bimmer
Sammála.... hef lent í þessu með minn.

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 14:09
by SteiniDJ
Þakka ykkur. Það ætti ekki að vera neitt stórmál fyrir kunnáttu mann að skipta um svona skynjara?

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 14:46
by Manace
Ætti ekki að vera neitt mikið mál.
Ef ég man rétt þá er skynjarinn bara rétt fyrir innan innrabrettið.
Geta samt verið orðnir ansi fastir eins og ég lenti í einu sinni.
Þá boraði ég bara uppí hann og setti síðan skrúfu og reif hann úr þannig. :santa:

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 18:00
by Alpina
ATH,,, þegar þú ert búinn að skipta um skynjara ,, þá þarf að svissa á bílinn,, bíða í 30 sek og svissa af ,, setja svo í gang,,

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Sat 09. Jul 2011 18:20
by SteiniDJ
Takk fyrir svörin drengir, ætla að kíkja á þetta eftir helgi. Ætla líka að sjá hvort hann hafi getað farið í einhvern snúning útaf því að ég var að vesenast í kringum þetta akkúrat áður en þetta gerðist.

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 09:14
by Danni
Alpina wrote:ATH,,, þegar þú ert búinn að skipta um skynjara ,, þá þarf að svissa á bílinn,, bíða í 30 sek og svissa af ,, setja svo í gang,,


Ég gerði það ekki þegar ég skipti um í mínum E39 en samt var ekkert vesen :?

Hvers vegna þarf að gera þetta?

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 22:22
by Alpina
Danni wrote:
Alpina wrote:ATH,,, þegar þú ert búinn að skipta um skynjara ,, þá þarf að svissa á bílinn,, bíða í 30 sek og svissa af ,, setja svo í gang,,


Ég gerði það ekki þegar ég skipti um í mínum E39 en samt var ekkert vesen :?

Hvers vegna þarf að gera þetta?


Hhhhhhhmmmmm,, ég lenti í þessu á RP 427 .. og ABS ljósið fór ekki .


hringdi í Bjarka Eðalbíl og fékk þetta tips,,,,,,,,, hélt að þetta væri algilt :oops: :oops: :oops: :oops:

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 17:24
by Hreiðar
Danni wrote:
Alpina wrote:ATH,,, þegar þú ert búinn að skipta um skynjara ,, þá þarf að svissa á bílinn,, bíða í 30 sek og svissa af ,, setja svo í gang,,


Ég gerði það ekki þegar ég skipti um í mínum E39 en samt var ekkert vesen :?

Hvers vegna þarf að gera þetta?

Er það ekki bara til þess að taka "villuljósið" af? Þurfti að gera þetta þegar ég skipti um klossa á mínum. Ef ég skil þetta rétt.

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Thu 11. Aug 2011 03:24
by SteiniDJ
Nýr skynjari á leiðinni.

Stoppaði stutt í eðalbílum í gær. Þegar ég keyri burt þá virkaði hraðamælirinn skyndilega, en öll ljós loguðu áfram. Svo í dag þegar ég fer að keyra þá var hraðamælirinn ekki virkur. Hvað er þetta eiginlega? :lol:

Re: ABS vandamál á M5?

PostPosted: Fri 12. Aug 2011 22:43
by Hreiðar
SteiniDJ wrote:Nýr skynjari á leiðinni.

Stoppaði stutt í eðalbílum í gær. Þegar ég keyri burt þá virkaði hraðamælirinn skyndilega, en öll ljós loguðu áfram. Svo í dag þegar ég fer að keyra þá var hraðamælirinn ekki virkur. Hvað er þetta eiginlega? :lol:

BMW :lol:






nei þarna fór ég of langt yfir strikið :thdown: