Page 1 of 1

Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Wed 06. Jul 2011 03:52
by Jónas Helgi
Jæja, ég er á bíl sem var fluttur inn 2007 af honum Danna djöful og ég veit ekkert um sögu bílsins eða hvað var gert við hann fyrir komu hingað til landsins.

Mig langar mig að fara í að kanna slithluti og þessháttar, ég hef mjög litla bílakunnáttu sjálfur og get þess ekki dæmt um hvað þarf að skipta um eða huga að.

Það sem ég hef gert við bílinn (e46 325i) síðan að ég fékk hann er:

Bremsuklossar
Bremsudiskar
Bremsuskynjarar
Skipt um hosu á inntakinu (Það var kominn rifa)
Smurður á 4-5.000Km fresti með Mobil1 og alltaf skipt um olíusíu.

Svo var maður hérna á kraftnum sem tók að sér smá verk:
Skipti um 2 pakkningar á gírkassa (lak olía)
Og setti nýja olíu á gírkassa og nýja olíu á drif og það var gert í kringum 110.000Km

Annað hef ég ekki gert og ekki þurft að gera vegna þess að mér fynst hann hafi ekki misst neina aksturseiginleika.

Ég er búinn að kaupa ný kerti í bílinn, ég veit ekki hvenær þau voru skipt um seinast en mér fanst vera kominn tími á þau.

Bíllinn var ekinn 97.000Km þegar ég fékk hann 2007 og núna 4 árum seinna er hann ekinn 122.000.

Mig langaði bara að forvitnast hvað er það helsta sem þarf að skipta um og hvað þarf að huga að mest. Hvert get ég farið með bílinn án þess að kafa djúpt ofaní veskið fyrir tilturlega "ÍTARLEGT" inspection ?

Flott væri ef einhver hérna á kraftinumm væri til að taka þetta að sér, mér fynnst ekkert betra en styrkja kraftsmenn með smá svörtum vasapening ;)

-Jónas

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 21:05
by Stefan325i
Ekkert óeðlilegt við þessa upptalningu aðalega slithlutir sem þarf að skipta um, samt finnst mér full gróft að skipta um mobil1 á 4-5þ km fresti getur alveg keyrt svona fína olíu 10- 15þ km.

Ég veit ekki hvað ætti að gera við bílinn þinn ef þú finnur ekkert að honum, svosem fínt að fá einhvern héðan af spjallinu að gera inspection á honum og vera með listan frá BMW til hliðsjónar. Einu vökvar sem eru eftir hjá þér er á stýrinu, vélini og bremsunum, það er fínt að skipta um þá reglulega.

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 21:43
by slapi
Eða kannski bara fara eftir þjónustukerfi bílsins og spara ekki í olíusíurnar :thup:

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Fri 08. Jul 2011 23:42
by ///MR HUNG
Ef þetta er SR-xxx þá er mótorinn ekinn mun minna en bíllinn.

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Sun 10. Jul 2011 01:19
by Subbi
///MR HUNG wrote:Ef þetta er SR-xxx þá er mótorinn ekinn mun minna en bíllinn.


Það er gott að vita... veistu c.a. hversu mikið minna.. :?:

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 13:07
by Jónas Helgi
///MR HUNG wrote:Ef þetta er SR-xxx þá er mótorinn ekinn mun minna en bíllinn.


SS-F38 :)

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 20:21
by ///MR HUNG
Já auðvitað er þetta ekki sr.

Ég seldi Danna hann,þetta er allt komið í einn graut hjá manni :lol:

Re: Viðhald á 7 ára gömlum e46.

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 22:39
by Djofullinn
Mig minnir endilega að þessi bíll hafi verið með fulla þjónustubók? :P