Page 1 of 1

MAYDAY - aflestur og bilanagreining - FIXED

PostPosted: Thu 16. Jun 2011 23:36
by thisman
Er einhver meistari hérna sem á séns og hefur aðstöðu til að taka E92 í aflestur í fyrramálið (I know, sautjándi júní, mikil bjartsýni)? Fékk vélarljósið upp nokkrum sinnum í kvöld og ætlaði að fara út úr bænum á morgun, alveg týpískt. Ef sá hinn sami er með einhverja basic viðgerðaraðstöðu / aðgang að varahlutum þá væri það náttúrulega enn betra.

Greiði að sjálfsögðu fyrir þetta!

Re: MAYDAY - aflestur og bilanagreining

PostPosted: Fri 17. Jun 2011 08:38
by thisman
Jæja, tók hann út áðan í smá rúnt og ljósið kom ekki. Finn samt að gangurinn er ekki alveg smooth á milli 1500-2000 RPM, til dæmis þegar maður þarf að hægja á sér upp brekku og gefa síðan rólega inn aftur. Það var akkurat undir þessum kringumstæðum sem ljósið kviknaði í gær.

En hvernig er það, geymir tölvan villukóðana í minni þó svo að ljósið slokkni? Þ.e. get ég látið lesa af þessu og séð hvað er málið þó svo að ljósið logi ekki í akkurat það skiptið?

Re: MAYDAY - aflestur og bilanagreining

PostPosted: Fri 17. Jun 2011 12:24
by bimmer
Já þetta er allt geymt.

Re: MAYDAY - aflestur og bilanagreining - FIXED

PostPosted: Mon 20. Jun 2011 10:49
by thisman
Lausnin fundin - háspennukefli farið og því búið að skipta þeim öllum út.

Re: MAYDAY - aflestur og bilanagreining - FIXED

PostPosted: Mon 20. Jun 2011 21:11
by bimmer
Er þetta nú ekki döpur ending?

Re: MAYDAY - aflestur og bilanagreining - FIXED

PostPosted: Mon 20. Jun 2011 22:18
by thisman
Jebb, finnst það nú - alveg ótrúlega slöpp hreinlega. Ekki að ég hafi í sjálfu sér eitthvað vit á því, man bara ekki eftir að hafa þurft að skipta um slíkt áður á nokkrum þeirra bíla sem ég hef átt.

Annars var ég búinn að sjá á google þegar ég var eitthvað að reyna að átta mig á þessu að háspennukeflin væru veiki hlekkurinn í þessari vél og margir þræðir til þess efnis. Þessar elskur hafa allar sína veikleika og miðað við síðasta BMW sem ég átti (e46 320d) þá veldur þetta mér minna hugarangri en skrambans swirl flaps vesenið. Verður maður ekki annars að horfa á jákvæðu hliðarnar? 8)