Page 1 of 1

Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Sun 12. Jun 2011 17:54
by luli240
Ég varð fyrir því skemmtilega óhappi að verða rafmagnslaus og fékk start og eftir það hættu hraðamælirinn og eyðslumælirinn að virka.

Og líka trippið hætti að telja, keyrði rúma 200km eftir þetta og hann er enþá keyrður jafn mikið og fyrir startið :)

Ég fór yfir öll öryggi og þau voru öll í góðu standi, þannig hvað gæti þetta mögulega verið ?

og þetta er 318i e46 '99 ;)

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Sun 12. Jun 2011 20:56
by HaffiG
Líklega hefur tölvan eitthvað klikkað við startið. Einhversstaðar heyrði ég að það gæti gerst..

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Sun 12. Jun 2011 21:14
by luli240
HaffiG wrote:Líklega hefur tölvan eitthvað klikkað við startið. Einhversstaðar heyrði ég að það gæti gerst..


Já hef heyrt það líka, þarf ég þá bara að fara og láta lesa af honum eða ? :shock:

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Sun 12. Jun 2011 21:40
by ömmudriver
HaffiG wrote:Líklega hefur tölvan eitthvað klikkað við startið. Einhversstaðar heyrði ég að það gæti gerst..


Yes, JónHrafn lenti í veseni með boddýtölvuna í sínum Facelift 320d Touring þegar bíllinn hans fékk start eða varð rafmagnslaus.

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Sun 12. Jun 2011 21:51
by luli240
ömmudriver wrote:
HaffiG wrote:Líklega hefur tölvan eitthvað klikkað við startið. Einhversstaðar heyrði ég að það gæti gerst..


Yes, JónHrafn lenti í veseni með boddýtölvuna í sínum Facelift 320d Touring þegar bíllinn hans fékk start eða varð rafmagnslaus.


Og hvernig reddaði hann því ?

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Sun 12. Jun 2011 23:01
by ömmudriver
luli240 wrote:
ömmudriver wrote:
HaffiG wrote:Líklega hefur tölvan eitthvað klikkað við startið. Einhversstaðar heyrði ég að það gæti gerst..


Yes, JónHrafn lenti í veseni með boddýtölvuna í sínum Facelift 320d Touring þegar bíllinn hans fékk start eða varð rafmagnslaus.


Og hvernig reddaði hann því ?


Nú man ég það ekki en þú getur bara grafið upp þráðinn hans í Bílar meðlima :)

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Thu 16. Jun 2011 14:21
by Astijons
er þetta ekki bara sama og í e36?

rafmagns-pluggið við drifið að svindla á þér?

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Thu 16. Jun 2011 18:56
by MeChAnIxX
Hraðamælirinn er tekinn í gegnum ABS kerfið... nánar tiltekið í afturhjólinu bílstjóramegin...

Logir ABS ljósið ??? þá er þetta vandamálið :!:

Re: Hraðamælir og eyðslumælir virka ekki !

PostPosted: Tue 21. Jun 2011 13:40
by luli240
MeChAnIxX wrote:Hraðamælirinn er tekinn í gegnum ABS kerfið... nánar tiltekið í afturhjólinu bílstjóramegin...

Logir ABS ljósið ??? þá er þetta vandamálið :!:



Jú þetta er vandamálið :)