Page 1 of 1

Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Mon 06. Jun 2011 18:48
by Breed
Sælt verið fólkið. :)

Ég er í smá vanda með bílinn (Bmw 318i e36 - 91.Model)
Þetta byrjaði þannig að ég var að keyra í fyrradag þegar bíllinn tekur uppá því að drepa á sér.

Bilunin lýsti sér þannig að rafmagnskerfið hætti að fá straum frá alternatornum og gekk bara á rafgeyminum þangað til að bíllinn drap á sér.
Ég athugaði alternatorinn og rafgeymin þeir virka báðir 100%. Ég tók loftflæðiskynjara úr sambandi og fleyri skynjara og ekkert lagaðist.
Svo er merki í mælaborðinu sem heitir "Inspector (svo kemur lína af sirka 10 litlum kössum og það er kveikt á tvem þeirra eða meira)" það merki hverfur allveg eftir að bíllinn er búinn að vera í gangi í svona 10-30 sek án startkappla og svo drepur hann á sér.

Veit einhver hvað málið gæti verið ?
Takk fyrir.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Mon 06. Jun 2011 22:26
by Zed III
ekki svosem klár á því hvað sé í gangi en Inspector ljósið er bara til að segja þér hvenær bíllinn á að fara í næstu service og er því ótengt þessari bilun.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Tue 07. Jun 2011 01:02
by Breed
Zed III wrote:ekki svosem klár á því hvað sé í gangi en Inspector ljósið er bara til að segja þér hvenær bíllinn á að fara í næstu service og er því ótengt þessari bilun.

Já okey gott að vita það :)

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Tue 07. Jun 2011 08:34
by Zed III
Er ekki skynsamlegt að fara með bílinn í álestur í eðalbíla. Þeir taka ekki mikið fyrir aflesturinn.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Tue 07. Jun 2011 11:57
by Breed
Zed III wrote:Er ekki skynsamlegt að fara með bílinn í álestur í eðalbíla. Þeir taka ekki mikið fyrir aflesturinn.

Jú ég geri það sennilega.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Tue 07. Jun 2011 18:01
by Tommi Camaro
einginn álestur lagar þetta. Ath main fuse. Eða hleðsluöryggi.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Tue 07. Jun 2011 22:51
by Breed
Tommi Camaro wrote:einginn álestur lagar þetta. Ath main fuse. Eða hleðsluöryggi.

Nei það er líka mikið vesen fyrir mig að fara að draga bílinn bara fyrir lestur. Þetta hlítur bara að vera annað hvort öryggið.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 00:01
by GunniT
hvernig tékkaðirðu á torinum? Og hvað er hann að hlaða mikið?

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 00:22
by Breed
GunniT wrote:hvernig tékkaðirðu á torinum? Og hvað er hann að hlaða mikið?

Ég fór á verkstæði uppá höfða með alternatorinn, man ekki hvað það hét en þeir mældu hann fyrir mig og hann er að hlaða sirka 13-14 v og virkar fínt. Þar að auki keypti ég annan notaðan alternator sem virkar fínt og það var enþá sama vesen svo þetta er ekki alternatorinn.

Ég er með glænýjann rafgeymi.
Öryggi 37 (10A) sem er fyrir "Engine compartment light, Instrument cluster, Licence plate light, sidelight right" er að springa reglulega. Ég er ekki að átta mig á hversvegna en það ætti ekki að vera að valda þessu, held ég allveg pottþétt.
Svo brotnaði stúturinn á endakútinum í pústkerfinu af, kanski gæti pústið verið að valda þessari bilun...

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 00:28
by Breed
En ég ætla að athuga fyrst með relay-in. Ég hugsa að það sé málið.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 00:28
by GunniT
Þegar þú svissar á bílinn kemur rafgeymaljósið?

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 00:35
by Breed
GunniT wrote:Þegar þú svissar á bílinn kemur rafgeymaljósið?

Nei það kemur ekki. Allavega ekki rétt áðan og rafgeymirinn er hálftómur en samt er nóg á honum til að lýsa upp ljósin í mælaborðinu.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Wed 08. Jun 2011 01:18
by GunniT
Ég lenti í svona á 318 bíl sem ég átti þá kom ekki hleðsluljós í mælaborðið og var það kolabrúin sem var biluð í altanatorinum. Svo sagði mér einhver að ef peran fyrir hleðsluljósið springi þá getur það á sumum bílum verið valdur af því að bíllinn hlaði ekki.

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Thu 09. Jun 2011 13:11
by Stefan325i
Það getur verið að peran sé viðnámið sem þarf til að fá altenatorinn í gang..

Re: Ahverju drepur hann á sér? e36

PostPosted: Thu 16. Jun 2011 14:18
by Astijons
Breed wrote:Öryggi 37 (10A) sem er fyrir "Engine compartment light, Instrument cluster, Licence plate light, sidelight right" er að springa reglulega. Ég er ekki að átta mig á hversvegna en það ætti ekki að vera að valda þessu, held ég allveg pottþétt.
Svo brotnaði stúturinn á endakútinum í pústkerfinu af, kanski gæti pústið verið að valda þessari bilun...


pústið hefur brætt vírana saman fyrir numeraplötuna og er mega útleiðsla þar...

nei segji svona