Ég er í smá vanda með bílinn (Bmw 318i e36 - 91.Model)
Þetta byrjaði þannig að ég var að keyra í fyrradag þegar bíllinn tekur uppá því að drepa á sér.
Bilunin lýsti sér þannig að rafmagnskerfið hætti að fá straum frá alternatornum og gekk bara á rafgeyminum þangað til að bíllinn drap á sér.
Ég athugaði alternatorinn og rafgeymin þeir virka báðir 100%. Ég tók loftflæðiskynjara úr sambandi og fleyri skynjara og ekkert lagaðist.
Svo er merki í mælaborðinu sem heitir "Inspector (svo kemur lína af sirka 10 litlum kössum og það er kveikt á tvem þeirra eða meira)" það merki hverfur allveg eftir að bíllinn er búinn að vera í gangi í svona 10-30 sek án startkappla og svo drepur hann á sér.
Veit einhver hvað málið gæti verið ?
Takk fyrir.


