Page 1 of 1

Vatnsvandamál með M50B20

PostPosted: Sun 05. Jun 2011 21:29
by T-bone
Komiði sælir.

Það er vesen á bílnum hjá konunni. Þetta er E34 með M50B20.

Mér var sagt frá því þegar ég náði í bílinn að vatnsdælan væri orðin eitthvað léleg. Ég skipti um vatnsdæluna, og tók vatnslásinn úr. Skipti svo um viftukúplinguna og viftuspaðana.

Bíllinn hélt hita fínt í einn til tvo daga og allt í lagi.

Svo skreppur konan á bílnum í morgun og þegar hún kemur aftur heim er vatnið að leka af bílnum. Hitinn samt í góðu og allt.

Ég set aftur vatn á bílinn og lofttæmi og flott. Miðstöðin blæs heitu og allt. Kíki aðeins út og bíllinn heldur fínt hitanum. Svo allt í einu fer hann að gubba vatninu út af sér. Ég stoppa og kíki á þetta. Hitinn í mega góðu og allt, nema hvað að þá heyri ég vatnið bubbla á kerfinu og hann er að æla því útaf sér með tappanum á forðabúrinu.

Á eftir að tékka hvort að það komi loftbólur uppí forðabúrið, og ég er ekki búinn að þjöppumæla.


Getur þetta mögulega verið eitthvað annað en heddpakkning?

Re: Vatnsvandamál með M50B20

PostPosted: Sun 05. Jun 2011 22:37
by skulzen
sprunga i heddi, bókað mál