Page 1 of 1

E39 540 fer ekki í gang - Lausn: Bensíndæla

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 16:26
by DiddiTa
Keyrði bílinn í gær alveg vandræðalaust, fór að borða og síðan þegar ég kom út og ætla starta honum þá fer hann í gang í smástund en voða truntuhljóð í honum og drepur á sér eftir örfáar sekúndur, gerði þetta 2-3x og hætti svo bara.

Reyndi að starta í morgun aftur og þá reynir hann að starta en dettur aldrei í gang

Einhverjar hugmyndir ? :D

Bensíndælan var ónýt

Re: E39 540 fer ekki í gang

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 16:38
by saemi
bensínlaus?

Re: E39 540 fer ekki í gang

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 17:04
by DiddiTa
Var búinn að setja smotterí á hann rétt áður en ég drap á honum, eru allavega einhverjir 10l á honum núna, tölvan sýnir range uppá einhverja 40.

Var að prufa að svissa á hann, heyri ekki neitt hljóð í bensíndælunni.. ætli hún sé ekki bara farin

Re: E39 540 fer ekki í gang

PostPosted: Sat 04. Jun 2011 18:43
by Alpina
Bensíndælan gæti verið farinn eins og þú bendir á ,, en rafmagnið ,, er nóg af því

Re: E39 540 fer ekki í gang

PostPosted: Sun 05. Jun 2011 04:52
by Danni
540-inn minn hagaði sér svona þegar sveifarásskynjarinn fór.

Myndi skjóta á hann ef að bensíndælan er ekki sökudólgurinn.

Re: E39 540 fer ekki í gang

PostPosted: Sun 05. Jun 2011 13:57
by jon mar
Það dugar sumsé ekki að gasa í hinn tankinn? :shock: :mrgreen: