siddisig wrote:
Sælir bið afsökunar en vandræðin eru þau að hái geislinn kviknar ekki athugaði fyrst með öryggi fékk síðan ábendingu um að skoða perurnar og gerði það og virðast þær vera í lagi en tók þá eftir að annað pluggið við báðar perurnar var ekki tengt og þegar ég tengdi það þá kviknaði á þeim báðum en þá virkaði skifterinn ekki og ég gat ekki slökkt þau þau lifðu líka eftir að ég drap á bílnum og tók lykilinn úr vona að þetta sé betra og bíllinn er 740IL 97 model e38 bíll að mér er sagt með fyrirframm þökk.
Sælir biðst afsökunar, en vandræðin eru sú að hái geislinn kviknar ekki. Ég athugaði fyrst með öryggið og fékk síðan ábendingu um að skoða perurnar sem ég gerði og þær virðast vera í lagi. En síðan tók ég eftir því að annað pluggið við báðar perurnar var ekki tengt og þegar ég tengdi það þá kviknaði á báðum perunum en þá virkaði ljósarofinn ekki og ég gat ekki slökkt ljósin, þau sem sagt lýstu einnig eftir að ég drap á bílnum og tók lykilinn úr. Vona að þetta sé betra og já bíllinn er 740IL 97 model e38 bíll að mér er sagt með fyrirframm þökk
ef ég skil þetta rétt þá hefur þú tengt þetta einhvað vitlaust ljósin eiga ekki að loga eftir að þú tekur lykilinn úr og (slekkur á ljósarofanum) ekki nema þú hafir verið með stefnuljósarofann stilltan á hægri eða vinstri og þá skylst mér að ljósin logi í óakveðin tíma út frá því. annars ert þú kominn í einhverja rafkerfis-steypu greinilega, taktu úr sambandi það sem þú varst að gera og láttu einhvern verkstæðisgæja kíkja á bílinn hjá þér. E-38 er ekki rétti bílinn til að stunda tilraunir þegar kemur að rafkerfi, hlutirnir eru bara annaðhvort rétt tengdir eða ekki.