bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
N42B20 bölvað drasl? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=51333 |
Page 1 of 1 |
Author: | ömmudriver [ Sat 28. May 2011 11:57 ] |
Post subject: | N42B20 bölvað drasl? |
Sælir piltar, bróðir minn á eitt stykki gullfallegan E46 318iA 2003 módelið sem væri ekki frásögu færandi nema það að hann er búinn að láta skipta um vél einu sinni og stendur nú frammi fyrir major aðgerð við að laga seinni vélina. Þetta lýsti sér þannig að þegar hann kaupir bílinn fyrir fjórum árum amaði ekkert að bílnum eða svo hélt hann þangað til hann settist uppí bíl með samskonar mótor/skiptingu sem var töluvert sprækari en bíllinn hans. Hann fer í málið og sendir hann inní TB sem lesa af honum og segja honum að nokkur háspennukefli séu ónýt ásamt eitthverjum skynjara á vél(sem ég man ekki hver var), hann kaupir þetta nýtt og skiptir um en ekkert lagast bíllinn. Ég sagði honum þá að ræða við strákana inní Eðalbílum sem og hann gerir og kíkir Bjarki á bílinn og kemst að því að ventlastýringararmur í Valvetronic dótinu sé kapút. Varahlutirnir sem til þurfti í verkið ásamt áætlaðri vinnu voru þónokkrir hundrað þúsund kallar þannig að Bjarki og ég mældum með að hann leitaði að notaðri vél og fann hann eina sem kom úr silfurgráa AC Schnitzer breytta E46 318 bílnum sem tjónaðist uppá heiði. Skipt var um vél og viti menn, bíllinn þrælvirkaði loksins og bróðir minn hæstánægður þrátt fyrir allt þetta helv. vesen. Nú eru komin um tvö-þrjú ár síðan "nýja" vélin fór ofan í og byrjar bíllinn á því núna í mánuðinum að láta öllu illu með rauðum ljósum í mælaborði og tilheyrandi! Bróðir minn drap á honum og lagði útí kant þar sem að hann núllaði tölvuna og setti í gang og bíllinn gekk eins og ekkert hafði í skorist en fór beint með hann ínní TB og lét lesa af honum. Ekkert fundu þeir en töldu að sveifarás- og knastáskynjararnir væru líklegir til þess að vera að valda þessu. Vikuna eftir þetta fór hann með bílinn til hans Kidda(K.Kristinnsson) sem kíkti betur á þetta og fann að tímakeðjan var sultuslök og taldi hann líklegt að hann hafði hoppað yfir á tíma. Kiddi þekkir þessar vélar ágætlega og veit að tímakeðjustrekkjarinn í þessum vélum fyllist af sóti með tímanum sem veldur því að hann strekkir ekki eins mikið á keðjunni og honum ber að gera sem jú veldur því að keðjan verður slök og getur hoppað yfir á tíma. Hann pantar því nýjan betrumbættan strekkjara úr umboði sem hann setur í bílinn og keðjan verður strekkt eins og hún á að vera og gengur bíllinn eðlilega. Daginn eftir er bíllinn kominn aftur uppá verkstæði hjá Kidda BILAÐUR og þarf nú að lyfta heddinu af mótornum og eitthvað meira vesen ![]() Er einhver hér sem hefur lent í veseni með þessa mótora?? |
Author: | HAMAR [ Sat 28. May 2011 15:11 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Ég átti minn 318i '03 í 3 mánuði og hann klikkaði aldrei á þeim tíma ![]() |
Author: | gunnar [ Sat 28. May 2011 21:37 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
HAMAR wrote: Ég átti minn 318i '03 í 3 mánuði og hann klikkaði aldrei á þeim tíma ![]() Það HLÝTUR að þýða að þetta séu skotheldur mótorar ![]() ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Sat 28. May 2011 22:42 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Well, ég var með M43B19 í 2000 E46 318iA í ár+ og bilaði mótorinn ALDREI. Svo kom N42 sem replacement fyrir M43, en N42 voru framleiddir í samstarfi við MG Rover ... þannig að ... ![]() |
Author: | ömmudriver [ Sun 29. May 2011 01:07 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
SteiniDJ wrote: Well, ég var með M43B19 í 2000 E46 318iA í ár+ og bilaði mótorinn ALDREI. Svo kom N42 sem replacement fyrir M43, en N42 voru framleiddir í samstarfi við MG Rover ... þannig að ... ![]() M43 er mikið betri mótor því að það er ekkert Valvetronic drasl í honum ![]() |
Author: | slapi [ Sun 29. May 2011 09:55 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Afhverju þarf að lyfta heddinu af mótornum? Er hann ekki bara farinn yfir á tíma eins og allir þessir mótorar munu gera einn daginn? |
Author: | Alpina [ Sun 29. May 2011 11:07 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn |
Author: | BMW_Owner [ Sun 29. May 2011 12:56 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Alpina wrote: HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn hlutir í dag eru svo sannarlega ekki byggðir til að endast. í gamla daga var allt einfalt en þá hentu menn bílunum útaf því að þeir riðguðu svo mikið en í dag riðga bílar lítið sem ekkert en í staðinn þá hrynja vélarnar eins og andskotinn. (Vélar=skynjarar,kassi,drif) |
Author: | Andri Fannar [ Mon 30. May 2011 09:51 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Mín hafði ekki verið með neitt vesen í rúm tvö ár fyrr en núna í vor. Fyrir tveimur árum var skipt um allt tengt tímakeðjunni, strekkjara og svoleiðis. Núna fór hann að hegða sér undarlega og fullt af villum komu, Davíð kannast við þetta, endaði á að taka allt í sundur og stilla tímann á keðjunni upp á nýtt og þá varð hann aftur góður ![]() |
Author: | -Hjalti- [ Mon 30. May 2011 12:10 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
BMW_Owner wrote: Alpina wrote: HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn hlutir í dag eru svo sannarlega ekki byggðir til að endast. í gamla daga var allt einfalt en þá hentu menn bílunum útaf því að þeir riðguðu svo mikið en í dag riðga bílar lítið sem ekkert en í staðinn þá hrynja vélarnar eins og andskotinn. (Vélar=skynjarar,kassi,drif) í gamla daga voru menn að taka 160hö útúr 5.7 lítra vélum.. ![]() og meðal fjölskildutíkur voru ekki mikið meira en 50-60hö. Það er ekki skrítið að þetta endist þegar ekkert er verið að taka útúr þessu |
Author: | SteiniDJ [ Mon 30. May 2011 13:08 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Alpina wrote: HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn 2001 - 2003, ekki beint það nýjasta! |
Author: | maxel [ Wed 01. Jun 2011 01:36 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
SteiniDJ wrote: Alpina wrote: HVAÐ ER AÐ GERAST , eiginlega er allt þetta nýja sem framleiðendur eru að búa til .. lélegt upp til hópa KIA og Hyundai virðast vera fremstir nú á tíðum ,, Amerískt er einnig að koma sterkt inn 2001 - 2003, ekki beint það nýjasta! Maðurinn er fæddur 1904, þetta er nýtt fyrir honum |
Author: | Alpina [ Wed 01. Jun 2011 07:24 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Þetta er liðónýtt.. Nýju V8 vélarnar hjá MB BMW PORSCHE VW ,, er meira og minna í lúkunum á mechanics,,, virkilega illa ígrundaðar sparnaðir sem menn hafa notað einnig eru 4 cyl bensín hjá BMW og MB sérlega bilanagjarnar Viðskiptafræðingar///Hagfræðingar hafa fengið að fara offari með excel-skjölin sín en ,, gæðin og áræðanleikinn þurft að láta í minni pokann .. |
Author: | Lindemann [ Wed 01. Jun 2011 23:11 ] |
Post subject: | Re: N42B20 bölvað drasl? |
Alpina wrote: Þetta er liðónýtt.. Nýju V8 vélarnar hjá MB BMW PORSCHE VW ,, er meira og minna í lúkunum á mechanics,,, virkilega illa ígrundaðar sparnaðir sem menn hafa notað einnig eru 4 cyl bensín hjá BMW og MB sérlega bilanagjarnar Viðskiptafræðingar///Hagfræðingar hafa fengið að fara offari með excel-skjölin sín en ,, gæðin og áræðanleikinn þurft að láta í minni pokann .. HALLÓ! fullt af fólki verður atvinnulaust ef þetta dót bilar ekki helling..... Mér finnst þetta góð þróun! ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |