Page 1 of 1

[E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Fri 27. May 2011 02:10
by flöffí
:puker: :pale: :pale: :pale: :pukel:

Gott kvöld, það hefur komið fyrir mig núna í tvígang eftir að bíllinn hefur látið standa í um 2 daga óhreyfður (veit ekki hvort það skipti máli)
að það komi vond lykt útúr miðstöðinni þegar ég kveiki á honum en hverfur eftir 5 mínútur eða svo. Fyrst fanst mér þetta vera svona
hestalykt eða svona eins og er inní fjárhúsum eða e-h en þetta er virkilega slæm lykt og kalla þetta bara ýldulykt :pukel:

Ég er búinn að tjékka í öllum bílnum og það er ekki vatnsleki eða neitt inní bílnum sem ætti að lykta enda kemur hún um leið og ég
kveiki á honum þá gýs þetta útum miðstöðina en ekki alltaf bara í þessi 2 skipti. Fyrst fyrir kanski mánuði síðan og síðan núna áðan.

Hvað gæti þetta verið? Ég er enginn sérfræðingur en gæti þetta ekki verið bara e-h gömul drulla í einhverjum miðstöðvarsíum eins
og frjókornasíunni eða eithvað ? veit samt ekkert hvort eithvað komist þangað sem gæti farið að slá í.. hehe :pale:
en hefur einhver annar lent í þessu og leyst vandann?

Takk kærlega :)

Re: [E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Fri 27. May 2011 02:24
by Danni
Ég myndi allavega byrja á því að skipta um frjókornasíurnar.. eða síuna ef það er bara ein.

Re: [E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Fri 27. May 2011 02:31
by flöffí
Danni wrote:Ég myndi allavega byrja á því að skipta um frjókornasíurnar.. eða síuna ef það er bara ein.


Já, ég ætla í það strax á morgun.

Ég las einhverntíman á netinu að það er einhver bakki sem tekur á móti vatni sem A/C losar sig við og það
gæti byrjað að mygla í þeim bakka, er einhver leið að komast að þessum bakka án þess að nota hamar og skrufjárn? :roll:

Re: [E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Fri 27. May 2011 20:42
by ViggiRS
Hægt að kaupa svona efni í spraybrúsa sem þú kveikir á og hefur í gangi inn í bílnum með A/C on og hringrásina inn í bílnum og bílinn í gangi líka...tekur svona
15 mín og drepur alla lykt og bakteriur í leiðinni...Kostar að mig minnir 3000 kr. Tekur líka smá reykingalykt.

Re: [E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Fri 27. May 2011 21:12
by SteiniDJ
ViggiRS wrote:Hægt að kaupa svona efni í spraybrúsa sem þú kveikir á og hefur í gangi inn í bílnum með A/C on og hringrásina inn í bílnum og bílinn í gangi líka...tekur svona
15 mín og drepur alla lykt og bakteriur í leiðinni...Kostar að mig minnir 3000 kr. Tekur líka smá reykingalykt.


Var einmitt með sama vandamál á E46 (þó einstaka sinnum), en þetta fór með tímanum en kom svo aftur. Skipti um síur og allt. Þetta var næsta skrefið, en svo seldi ég hann.

Er þetta nokkuð YZ-753? :lol:

Re: [E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Sat 28. May 2011 00:02
by ///MR HUNG
Þetta er frjókornasían.

Re: [E46] Ýldulykt úr miðstöð ?

PostPosted: Sat 28. May 2011 12:42
by iar
Þetta fylgir oft loftkælingunni (A/C). Ef það dugir ekki að skipta um frjókornasíuna myndi ég prófa að spreyja bakteríudrepandi efni frá Wurth inn á bak við síuna.

Geri þetta öðru hvoru á E36..

viewtopic.php?t=7070

http://forum.e46fanatics.com/showthread ... tion+smell