Page 1 of 1

hak í demparapúða

PostPosted: Wed 25. May 2011 22:38
by hauksi
Ég ætlaði að fara að skipta um demparapúða í bílnum hjá mér en mér finnst eitthvað bogið við þessa demparapúða sem ég fékk frá Tækniþjónustu bifreiða. En það virðist vera hak í legunni. Þannig að þegar maður snýr henni finnur maður alveg þegar kúlurnar fara fram hjá þessu haki.

Er þetta eðlilegt að það sé svona hak?
Image

Re: hak í demparapúða

PostPosted: Wed 25. May 2011 23:58
by crashed
svarið við því er nei það á ekki að vera neit hak

Re: hak í demparapúða

PostPosted: Thu 26. May 2011 00:05
by Axel Jóhann
Þetta lýtur nú bara út fyrir að vera notað!

Re: hak í demparapúða

PostPosted: Thu 26. May 2011 11:15
by hauksi
Axel Jóhann wrote:Þetta lýtur nú bara út fyrir að vera notað!


Mér er selt þetta sem ný vara. Ég ætla að kíkja til þeirra eftir vinnu og heyra hvað þeir segja.

Re: hak í demparapúða

PostPosted: Thu 26. May 2011 22:00
by hauksi
ég kíkti til þeirra í tb og þeir sýndu mér svona demparapúða úr tveimur mismunandi bmw-um, annað orginal, og það var svona hak í þeim öllum.
Þannig að þetta á greinilega að vera svona :shock: og þeim fannst þetta alveg jafn skrítið og mér :)

Allavega mystery solved :thup: