Page 1 of 2

Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 12:53
by Giz
Daginn,

Þetta hljómar kannski stupid, en hversu mikið rusl eru þessar bensíndælur?

Mín er farin aftur, skipt um hana mars 2010, og aftur núna, hefur greinilega verið e-ð gölluð helvísk, búið að valda mér miklum leiðindum þar sem bíllinn hefur ekki alltaf verið í ólagi, og aldrei þegar á verkstæðinu...

Búið að skipta um nokkra hluti að óþörfu sökum þessa til að komast að hvað væri að hrjá hann, en já, aftur dælan.

Er í ábyrgð og allt það, finnst þetta bara agalega stupid og hvimleitt.

Einhver heyrt á álíka áður?

G

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 13:02
by kalli*
Splæsa í Walbro næst bara.

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 16:11
by IngóJP
rétt hjá Kalla á þakinu

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 16:18
by SteiniDJ
Ég þurfti að skipta um dælu í fyrra og þær kosta ekkert lítið ($450 + s/h + skattar + tollar þá, hjá Pelicanparts). Hefur verið að haga sér vel.

Stóð hann í vetur? Ef svo, getur verið að það hafi farið illa með hana?

Annars vil ég persónulega nota genuine(eða OEM-brand) parta. Þú veist a.m.k. hvað þú ert að fá í hendurnar og ert ekki að taka óþarfa sénsa, en auðvitað óþarfa vesen ef þetta er alltaf að skemmast hjá þér.

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 16:42
by Giz
SteiniDJ wrote:Ég þurfti að skipta um dælu í fyrra og þær kosta ekkert lítið ($450 + s/h + skattar + tollar þá, hjá Pelicanparts). Hefur verið að haga sér vel.

Stóð hann í vetur? Ef svo, getur verið að það hafi farið illa með hana?

Annars vil ég persónulega nota genuine(eða OEM-brand) parta. Þú veist a.m.k. hvað þú ert að fá í hendurnar og ert ekki að taka óþarfa sénsa, en auðvitað óþarfa vesen ef þetta er alltaf að skemmast hjá þér.


Jamm, hann stóð í vetur. Skipt um dæluna eins og ég segi fyrir rúmi ári, minna en 10000 km!

Veit reyndar ekki merki, en var OEM amk.

Í ábyrgð, orðinn vel þreyttur á þessu. Bjarki þyrfti að hafa svona millilanda þjónustu!

G

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 17:47
by Axel Jóhann
Keyptu Walbro!

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Wed 25. May 2011 18:00
by SteiniDJ
Axel Jóhann wrote:Keyptu Walbro!


Sé ekki afhverju hann ætti að kaupa nokkurn skapaðan hlut ef þetta er í ábyrgð. :)

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 09:59
by Giz
SteiniDJ wrote:
Axel Jóhann wrote:Keyptu Walbro!


Sé ekki afhverju hann ætti að kaupa nokkurn skapaðan hlut ef þetta er í ábyrgð. :)


Já, en þetta er aðallega agallega pirrandi. Ég minntist nú á bensíndælu í upphafi, en það var ekki tekið í mál þar sem hún væri jú ný.

Þetta er búið að kosta án efa hátt í 2 mánuði, EWS module og fleira óþarfa dót. Spurning hversu hátt ég ybba mig...


Mér finnst þetta amk algerlega ekki í lagi og er pínu pissed!

Er btw með besta og mest metna verkstæði í Stokkhólmi, utan umboða það er.

G

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 10:11
by gunnar
Fyndið að menn vilji kaupa OEM dælur sem eru greinilega gallagripir (OEEEEM!!!!) en ekki Walbro sem er þekktasta merkið á markaðnum í þessum dælum og eru lofaðar í alla túrbó bíla ofl.

Stundum er OEM betra,,,, oftast ekki :lol:

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 10:18
by srr
Giz wrote:
SteiniDJ wrote:
Axel Jóhann wrote:Keyptu Walbro!


Sé ekki afhverju hann ætti að kaupa nokkurn skapaðan hlut ef þetta er í ábyrgð. :)


Já, en þetta er aðallega agallega pirrandi. Ég minntist nú á bensíndælu í upphafi, en það var ekki tekið í mál þar sem hún væri jú ný.

Þetta er búið að kosta án efa hátt í 2 mánuði, EWS module og fleira óþarfa dót. Spurning hversu hátt ég ybba mig...


Mér finnst þetta amk algerlega ekki í lagi og er pínu pissed!

Er btw með besta og mest metna verkstæði í Stokkhólmi, utan umboða það er.

G

Af hverju EWS module líka?

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 10:18
by Giz
gunnar wrote:Fyndið að menn vilji kaupa OEM dælur sem eru greinilega gallagripir (OEEEEM!!!!) en ekki Walbro sem er þekktasta merkið á markaðnum í þessum dælum og eru lofaðar í alla túrbó bíla ofl.

Stundum er OEM betra,,,, oftast ekki :lol:


Veistu, að ég kann að keyra, ég kann ekki og hef engann áhuga á að kunna að gera við bíla.

Í þessu tilviki kaupir verkstæðið dælu og setur í. End of story, eða reyndar ekki...

Þannig að fyndið eður ei, þannig er þetta bara, amk í mínu tilviki.

Hitt er að ég hef séð þetta áður, hef séð þónokkra á M5board sem hafa lent í svipuðu með nýlegar OEM dælur, þannig að það má mikið meira en vel vera að Walbro dótið sé betra.

G

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 10:22
by Giz
srr wrote:Af hverju EWS module líka?


Ég segi það sama. Þegar hann byrjaði á þessu í haust, stuttu fyrir vetrargeymslu, töldu þeir að EWS gæti verið eitthvað fönkí, þar sem bíllinn snéri mótor en fór ekki í gang engu að síður. Og með mjög nýlega bensíndælu á þeim tíma.

Þetta er búið að vera langur og leiðinlegur hausverkur. Vona að honum sé lokið!

G

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 18:09
by Alpina
E39 M5 :?

En að öllu gamni slepptu.. athugaðu í GUÐS bænum bensín síuna

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 19:46
by bimmer
Alpina wrote:E39 M5 :?

En að öllu gamni slepptu.. athugaðu í GUÐS bænum bensín síuna


+1.

Re: Bensíndæla e39 M5

PostPosted: Thu 26. May 2011 19:55
by SteiniDJ
Ja, í flestum tilfellum er OEM víst það besta sem fer í bílinn (þ.e. í sama verðflokk), en ég hefði ekkert á móti því að prófa eitthvað annað ef í ljós kæmi að nýja dælan mín væri drasl (OEM).

Lét sömuleiðis skipta um bensínsíu á sama tíma. Eins og Giz, þá finnst mér voðalega gaman að keyra bara. :mrgreen: