Gappa kerti

Posted:
Thu 19. May 2011 09:07
by Svezel
Datt í hug að fá smá input í þetta þar sem ég var að skipta um kertin í Roadster í gær og ákvað í fyrsta sinn að mæla gappið en ég hef aldrei pælt í þessu, alltaf gert ráð fyrir að bilið væri rétt. Það reyndist vera rétt frá framleiðanda (keypti kertin ekki frá umboðinu) en ég gat ekki betur séð en a.m.k. 1 kerti sem var í bílnum væri með vitlaust kertabil...
Hvað segið þið, mælið þið kertabilið þegar þið skiptið um kerti í BMW?
Re: Gappa kerti

Posted:
Thu 19. May 2011 09:16
by Logi
Ég mæli alltaf kertabilið þegar ég skipti um kerti. Þetta á að vera með réttu bili frá framleiðanda,
en það getur alltaf klikkað...
Re: Gappa kerti

Posted:
Thu 19. May 2011 12:41
by Einarsss
Ég fer yfir kertin hjá mér áður en ég set þau í

minnir 0.5mm fyrir boosted m20

Re: Gappa kerti

Posted:
Thu 19. May 2011 16:26
by ömmudriver
Ég mæli alltaf bilið á kertunum þegar ég skipti um þau.
Ég skipti um kerti í Volvo um daginn og keypti kertasettið í Brimborg en þau voru álíka dýr og hjá N1 og voru með réttu bili þannig að ég þurfti ekki að mæla það né stilla

Re: Gappa kerti

Posted:
Thu 19. May 2011 17:09
by Astijons
jee dudda mía... alltaf lærir maður eitthvað nýtt...