Page 1 of 1

e39 540 drepur á sér þegar lagt er á stýri

PostPosted: Wed 18. May 2011 14:35
by oskar9
Sælir kraftsmenn, er að lenda í smá veseni með 540 bílinn hjá mér, ef ég keyri mjög hægt eða er kyrrstæður og legg fullt á stýrið þá missir bíllinn rosalega snúning og kemur jafnvel fyrir að hann drepur á sér, þetta er sjálfskipur bíll og einnig er þetta rosalega misjafnt stundum finnur maður ekkert fyrir þessu og stundum get ég varla tekið hringtorg því stýrið nánast festist í beinni stöður.

getur verið að þetta sé stýrisdæla að svíkja eða þetta séu einhverjar lausar vacum slöngur ?

Takk kærlega :thup:

Re: e39 540 drepur á sér þegar lagt er á stýri

PostPosted: Wed 18. May 2011 16:44
by Jónas Helgi
Það er smá rifa á einní gúmmíbeyju hjá mér eftir MAF skynjarann á inntakinu og ég fattaði það fyrst þegar ég byrjaði að heyra smá
flaut/blístur þegar bíllinn var á jöfnum hraða á 2200-2400snúningum, þegar ég er kyrrstæður og sný stýrinu þá droppar snúningsmælirinn frá 100-300rpm.
Ekki eins ýkt og þetta er hjá þér en það er klárlega útaf loftmissi.

Re: e39 540 drepur á sér þegar lagt er á stýri

PostPosted: Wed 18. May 2011 17:44
by oskar9
Jónas Helgi wrote:Það er smá rifa á einní gúmmíbeyju hjá mér eftir MAF skynjarann á inntakinu og ég fattaði það fyrst þegar ég byrjaði að heyra smá
flaut/blístur þegar bíllinn var á jöfnum hraða á 2200-2400snúningum, þegar ég er kyrrstæður og sný stýrinu þá droppar snúningsmælirinn frá 100-300rpm.
Ekki eins ýkt og þetta er hjá þér en það er klárlega útaf loftmissi.



jamm hljómar svipað, ég kíki á þetta takk kærlega :thup: