Komið sæl.
Guðjón Guðvarðarson heiti ég, 58 ára bifvélavirki (ma. en hef ekki verið "praktisierandi" í bransanum lengi)
Ég á BMW 320 D. Hann er með svona skrýtinn lykil og starthnapp.
Um daginn varð ég svo óheppinn að hann varð rafmagnslaus, hegðaði sér eins og bjáni þegar ég setti hleðslutæki á hann, ma. festist "lykillinn" inni, þurfti aðeins að kippa í hann til að ná honum úr.
En,,, eftir að búið var að gefa honum straum með köplum, þá bregður svo við að "lykilinn" tollir ekki inni og það logar ljós í mælaborðinu (gul mynd af lykli með skástriki yfir).
Hvað ráðleggið þið mér að gera?
Með fyrirfram þakklæti.
Guðjón.
