Page 1 of 1
felguvandamál á 728

Posted:
Fri 13. May 2011 22:13
by kaybee
þannig er mál með vexti að mér áskotnaðist þessi andskoti fíni bmw 728 96 árgerð.. skipti yfir á sumarfelgurnar núna í vikunni en þá byrjuðu þessi svakalegu óhljóð í hjólabúnaðinum að aftan svo ég skipti aftur á vetrarfelgurnar og þá hvarf hávaðinn.. talaði við nágunga í dag og hann var e-h að tala um að felgubolltarnir að aftan væru of langir og væru að slátra handbremmsu dótinu.. held þessar felgur heiti rondel, stærðin á dekkjunum að framan er 245-40-18 og 265-40-18, djúpar og vel djúsý felgur.. kannist þið e-h við svona vandamál fróðu menn?
Re: felguvandamál á 728

Posted:
Fri 13. May 2011 22:14
by kaybee
Re: felguvandamál á 728

Posted:
Fri 13. May 2011 22:30
by sosupabbi
Já ég kannast við þetta, átti E38 740 sem gerði nákvæmlega það sama á rondell 58, það sem er að gerast er að boltarnir eru of langir eins og þér var sagt og þeir eru að rekast í gormana á handbremsunni. Getur stytt þá sjálfur ef þú ferð varlega í þetta annars er best að kaupa bara aðra styttri.
Re: felguvandamál á 728

Posted:
Fri 13. May 2011 22:36
by kaybee
oky snild, en veistu hversu mikið styttri þeir meiga vera?
Re: felguvandamál á 728

Posted:
Fri 13. May 2011 22:49
by saemi
Ef það er hristingur með þessu þá gæti þetta líka verið að þú sért með felgu sem er með of stóru miðjugati. Að felgan sé með E39 miðju og sé of rúm.
Re: felguvandamál á 728

Posted:
Fri 13. May 2011 23:12
by sosupabbi
saemi wrote:Ef það er hristingur með þessu þá gæti þetta líka verið að þú sért með felgu sem er með of stóru miðjugati. Að felgan sé með E39 miðju og sé of rúm.
Og þarf þá að setja svokallaða miðjuhringi á nafið, en ef þetta þú skrúfar niður afturrúðurnar og heyrir augljóslega að litlum hraða að þetta eykst með hraða þá eru þetta sennilega boltarnir, ekki mikið styttri, ca 5-10mm myndi ég giska.
Re: felguvandamál á 728

Posted:
Sun 15. May 2011 18:57
by birkire
miðað við hljóðin sem komu úr þessu held eg að boltarnir séu of langir, var þarna á verkstæðinu í vöku á meðan þessu veseni stóð