Page 1 of 1

Bensínleki

PostPosted: Wed 04. May 2011 20:47
by sosupabbi
Hefur einhver hérna skipt um bensínslöngurnar frá bensíntank og alveg uppað mótor? Þetta eru 2x járnslöngur að bensínsíum en gúmmí uppvið síurnar og svo aftur járnslöngur uppí húdd, þær eru ekkert ósvipaðar bremsuslöngum bara sverari.
Þetta er allt ryðgað og götótt og fosslekur á tveimur stöðum hjá mér, bílinn nær engan veginn að halda uppi bensínþrysting og gengur eins og hin mesta drusla, öll hjálp vel þegin þar sem ég sé ekki hvernig þetta er hægt án þess að taka drifið og bensíntankinn undan :( :(

Re: Bensínleki

PostPosted: Wed 04. May 2011 20:48
by sosupabbi
Þetta er btw E32 750

Re: Bensínleki

PostPosted: Wed 04. May 2011 21:27
by Vlad
Er bara

ALLT

að þessum bíl?

Re: Bensínleki

PostPosted: Wed 04. May 2011 21:48
by birkire
hvar leka rörin ? ef þau leka undir miðjum bíl t.d er hægt að skera bútana úr og nota millistykki með nipplum.. það er hinsvegar cheap fix ekkert minna leiðinlegt, bara ekki jafn tímafrekt

Re: Bensínleki

PostPosted: Wed 04. May 2011 22:19
by sosupabbi
birkire wrote:hvar leka rörin ? ef þau leka undir miðjum bíl t.d er hægt að skera bútana úr og nota millistykki með nipplum.. það er hinsvegar cheap fix ekkert minna leiðinlegt, bara ekki jafn tímafrekt

Já lét mér detta það í hug en fannst það frekar mikið cheap fix, annars lekur hann við afturdekkið bílstjóramegin og svo alveg lengst uppi bakvið allan andskota farþegamegin að aftan(leiðslan frá dælu í síu).
En hvernig er það, er ekki hægt að kaupa svona rör í Landvélum eða eitthvað og beygja það bara eftir þörfum sjálfur eins og með bremsurör?

Re: Bensínleki

PostPosted: Thu 05. May 2011 03:10
by Axel Jóhann
Jú þetta er til í landvélum, en þú getur líka bara klippt það sem þú getur af gömlu rörunum og lagt ný rör alveg í kringum bensíntankinn og alla leiðinlegu staðina, það þarf bara að finna góðann stað fyrir þau, þau þurfa ekkert endilega að ligga á bakvið allt ef þú nærð að festa þau almennilega annarstaðar. :thup: