Page 1 of 1

M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi.

PostPosted: Tue 03. May 2011 23:20
by Geysir
Kvöldið.

Spurning hvort þetta sé ekki paranoja í mér en mér finnst eins og M30B30 mótorinn gangi ekki á öllum cylendrunum í hægagangi.
Hélt fyrst að þetta væri aftasta kertið þar sem að gangurinn breyttist ekkert þegar ég tók það úr sambandi, þannig að ég keypti í hann ný ráááándýr platínumkerti (16 þús þakka þér fyrir með 20% afslætti :x ) en hann breyttist lítið við það, fannst hann jú vera snarpari í akstri (hin kertin voru eins og þau væri húðuð, rauðri húð.)

Nú er þetta sennilega paranoja í mér, gamall bíll og mótor.

Væri eitthver M30 gúru til í að taka hring á gripnum og segja mér bara af eða á hvort það sé bíllinn eða ég sem er ruglaður :lol: ?

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Wed 04. May 2011 01:21
by skulzen
prufa að skifta um kveikjulok og hamar

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Wed 04. May 2011 10:32
by Aron Fridrik
rauða húðin á kertunum er bensínbætiefnið frá lélega bensínu hjá olíufélögunum :thdown:

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Wed 04. May 2011 13:02
by HaffiG
Veit ekki hvort þetta tengist því eitthvað. En þetta lýsir sér svipað hjá mér. Bíllinn minn fór að vera skrítinn í gangi, reyndar ekki bara í lausagangi, heldur líka í akstri. Þegar ég aftengdi kerti 2 og 3 þá breyttist gangurinn ekki neitt. Ég prófaði að skipta um kerti og víxla háspennukeflum en allt kom fyrir ekki, hann bara gekk ekki á þessum tvem cyl.

Svo fór ég með hann uppí tb og þeir fundu út að heddpakkningin væri farin í sundur á milli cyl 2 og 3.

Spurning hvort það sé case-ið hjá þér? En ef þetta er bara í lausagangi hjá þér, þá finnst mér það nú tæpt..

btw.. það var svona húð á kertunum hjá mér líka :thdown:

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Wed 04. May 2011 13:04
by gardara
Held það sé því miður svona húð á kertunum hjá öllum þessa dagana :thdown:

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Wed 04. May 2011 14:04
by Vlad
Væri ekki eðlilegast ef að þessi olíufélög yrðu kærð fyrir þetta athæfi sitt?

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Wed 04. May 2011 14:58
by Astijons
Vlad wrote:Væri ekki eðlilegast ef að þessi olíufélög yrðu kærð fyrir þetta athæfi sitt?

eða þú


miðað við commentinn á "stóra þráðnum" :lol:

Re: M30B30 - Eins og hann gangi ekki á öllum cyl í hægagangi

PostPosted: Sun 08. May 2011 01:42
by Joibs
:lol: :lol:


en gætti líka verið að það sé eithver stíbla í bensín flæðinu, það gerðist við toyotuna hjá pabba, hann var búinn að verað keira alltaf á nánast tómum tanki og setti alltaf bara smá og smá á hann, síðan eftir að við vorum búnir að skupta um kerti og tékka á öllum kveikjonum til að sjá hvort það væri ekki alltílægi með allt þá datt okkur það í hug að það væri eithver drulla eða óhreinindi í botninum á tankinum sem hafi stíflað, filtum tankin og stuttu eftir var allt í góðu