Page 1 of 1

Gangvesen!

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 18:06
by HaffiG
Sælir

Bíllinn hjá mér er farinn að ganga furðulega. Eftir nánari skoðun komst ég að því að hann gengur ekki á stimplum 2 og 3 (talið frá framenda)

Ég er búinn að skipta um kerti, víxla háspennukeflum en allt kemur fyrir ekki, hann bara gengur ekki á þessum stimplum.
Sumsé, þegar ég aftengi þá með bílinn í gangi, þá breytist gangurinn ekki neitt, líkt og gerist með alla hina.

Kunniði einhverja skýringu á þessu?

btw.. e36 323i 1997

Re: Gangvesen!

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 21:08
by birkire
eru kertin að neista ? kemur straumur að háspennukefli ? opnast spíssar ? þjappar vélin á þessum strokkum ?

atriði sem er vert að kíkja á

Re: Gangvesen!

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 21:22
by HaffiG
birkire wrote:eru kertin að neista ? kemur straumur að háspennukefli ? opnast spíssar ? þjappar vélin á þessum strokkum ?

Já - já - veit ekki - TB tékkar á því

Re: Gangvesen!

PostPosted: Wed 27. Apr 2011 18:04
by HaffiG
Fór með bílinn uppí TB..

Heddpakningin er farin milli cyl 2 og 3 og vacumdós biluð.

Hvað í ósköpunum gerir þessi vacumdós?