Page 1 of 1

M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - rauk í gang :D

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 00:08
by srr
Sælir,

Við félagarnir erum að fara skipta um mótor í sjöunni minni, sem er oem 730i með M30B30.

Við erum að fara setja ofan í M30B35 sem ég hef átt út í skúr í nokkur ár.
Sá mótor er búinn að vera olíulaus allan tímann.

Ég hef heyrt að maður þurfi að græja eitt og annað áður en sett er í gang mótor sem hefur staðið svona lengi olíulaus.
Það sem mig langaði að heyra frá ykkur,,,,er hvað er það sem þarf að huga að áður en mótor er gangsettur, til að skemma ekki legur o.s.frv. út af þurrki ?

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 00:14
by auðun
smá OT. ég keypti eitt sinn bíl sem hafði staðið úti á túni í 5 ár og ekki verið startað í þann tíma. ég mætti með bílinn minn gaf honum start og keyrði heim. það var reyndar olía á mótornum en sama bensín og allt meiraðsegja mús i hanskahólfinu. Kom mér mikið á óvart að bíllinn myndi svo mikið sem hreyfast og mótorinn snúast án teljandi vandræða.

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 06:20
by Alpina
srr wrote:Sælir,

Við félagarnir erum að fara skipta um mótor í sjöunni minni, sem er oem 730i með M30B30.

Við erum að fara setja ofan í M30B35 sem ég hef átt út í skúr í nokkur ár.
Sá mótor er búinn að vera olíulaus allan tímann.

Ég hef heyrt að maður þurfi að græja eitt og annað áður en sett er í gang mótor sem hefur staðið svona lengi olíulaus.
Það sem mig langaði að heyra frá ykkur,,,,er hvað er það sem þarf að huga að áður en mótor er gangsettur, til að skemma ekki legur o.s.frv. út af þurrki ?



Eflaust er einhver olía til staðar á legum osfrv,, en allavega að taka bensíndælu relay/öryggi úr samband og starta þannig þar til þrýstingsljósið fer,, en áður ,, þá er gott að setja olíu á bílinn :wink:

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 09:14
by Einarsss
Án þess að hafa neitt fyrir mér í því þá ímynda ég mér að það sé ekki vitlaust að setja smá olíu inn í stimpilrýmið, þeas gegnum kerta gatið og handsnúa mótornum áður en þú gerir það sem Sveinbjörn minntist á.

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 09:50
by Danni
Einarsss wrote:Án þess að hafa neitt fyrir mér í því þá ímynda ég mér að það sé ekki vitlaust að setja smá olíu inn í stimpilrýmið, þeas gegnum kerta gatið og handsnúa mótornum áður en þú gerir það sem Sveinbjörn minntist á.


Myndi olían þá ekki bara sitja í sprengirýminu þangað til að vélin yrði sett í gang og olían myndi brenna? Svona þar sem að stimpilhringirnir eru einmitt þarna til þess að hleypa engu niður í pönnu eða upp í sprengirýmið.

Síðan finnst mér eins og það sé betra að losa stimpilstangirnar að neðan og smyrja legurnar vel, setja saman og handsnúa mótornum nokkra hringi til þess að koma í veg fyrir að stangarlegurnar fari strax. Er það kannski óþarfi ef maður lætur mótorinn snúast þangað til smurþrýstings ljósið hverfur?

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 10:10
by saemi
Mér lýst vel á hugmyndina hans Einars. Hætt við að þjappan yrði lítil ella. Olían myndar þunna húð á strokksveggjunum. Engin olía, þá þjappar bíllinn ekki að neinu ráði.

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 10:31
by gstuning
Ef við ýmindum okkur að það hafi verið að setja vélina samann þá þarf olíu á alla staði áður enn
vélin fer að þjappa af alvöru og setja þrýsting á legurnar.

Best er að taka kertin úr til að núlla út alla þjöppu og aftengja spíssa og cranka vélina duglega álagslausa henta pínu olíu
í stimpilrýmið til að smyrja veggina líka.

Ef olíuljósið fer þá er í góðu lagi að setja kerti og spíssa aftur í samband til að starta vélinni.

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 12:43
by srr
Hvað erum við að tala um mikið magn af olíu í hvern cylinder?
Einnig, þá er þessi mótor ekki nýsamsettur, heldur bara olíulaus.

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Tue 26. Apr 2011 13:37
by gstuning
100ml eða svo myndi vera nóg til að looba dótið vel til á veggjunum

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Thu 28. Apr 2011 01:46
by íbbi_
ég hef nú gert bæði reyndar, startað bíl sem hafði staðið mjög lengi án þess að gera neitt nema gefa start og það var allt í góðu,
en það meikar náttúrulega fullkominn sens hvaða vankantar eru til staðar þegar maður gerir það. ég hef aðhylst að setja smá olíu í gegnum kertagötin, og hef gert það án þess að geta sagt til um hvort mótorinn hafi annars skaðast, en þetta er e-h sem gamli hefur alltaf talað um og meikað sens finnst manni

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Sun 01. May 2011 16:33
by Siggi e12
Sæll Skúli

Ég tók kertin úr E12 og startaði honum þangað til olíuljósið slökknaði. Setti svo kertin í og þá hrökk hann í gang. :wink:

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - hvað þarf að gera?

PostPosted: Sat 07. May 2011 00:28
by srr
Við félagarnir tókum kertin úr og létum mótorinn starta þar til olíuljósið hvarf.

Kertin í og búmm,,,,hann rauk í gang.

Á meðfylgjandi link má sjá videoi af fyrstu gangsetningu :lol:



Þetta er semsagt E32 730i 1990 sem við Danni og Arnar Már (ömmudriver) vorum að swappa M30B35 ameríkumótor ofan í 8)
Mótorinn kemur úr E24 635csi árgerð 1987,,,,USA edition.

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - rauk í gang :D

PostPosted: Sat 07. May 2011 08:43
by jon mar
Hvað er að frétta með flame throwerinn :lol:

Re: M30 mótor sem hefur staðið olíulaus - rauk í gang :D

PostPosted: Sat 07. May 2011 11:59
by Danni
jon mar wrote:Hvað er að frétta með flame throwerinn :lol:


Slitnaði bolti sem heldur pústinu á pústgreininni og við náðum honum ekki úr, svo það þarf að fara með pústgreinina á verkstæði til að ná boltanum úr og setja nýjan í staðinn. Erum þó búnir að tilla annari pústgrein á til að hafa rétt á meðan :)