Page 1 of 1

Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 06:33
by Binnz
Er aðeins að forvitnast um þetta.

Hvað þyrfti ég að kaupa til að losna við þessar skálabremsur ?

kv

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 11:51
by saemi
Diskabremsur ... :lol:

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 11:54
by Alpina
Þó að hugmyndin sé góð.. þá efast ég að þetta sé þess virði, nema að þetta er allt illa farið osfrv.. td ryð ,, bara mitt álit

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 11:59
by saemi
Eina vitið er að fá allt draslið undan öðrum bíl myndi ég segja. Þú þarft dælur, diska, handbremsuborða, dælur fyrir þá, bremsuklossa, væntanlega legurnar og spyrnuna sem þær festast í. Handbremsubarkana, bremsurör og svona væri hægt að telja upp lengi í viðbót smálegt ýmislegt.

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 12:17
by 300+
Til að auðvelda þér vesen gætirðu líka farið út í mix og notað dælur með innbyggðu handbremsu mekkanói, úr Passat eða Volvo S/V40. Það gæti verið þægilegra en þá þarftu væntanlega að búa til bracket fyrir dæluna og kannski bæta einhverjum stubb-adapter við lögnina að dælu.

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 12:30
by x5power
svo er líka bara hægt að kaupa allt þetta sett hjá mér!

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 14:47
by saemi
x5power wrote:svo er líka bara hægt að kaupa allt þetta sett hjá mér!


Eina vitið.....

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 15:11
by auðun
eru thetta ekki bara spyrnur

Re: Skipta úr skálabremsum í diskbremsur að aftan E36

PostPosted: Sun 24. Apr 2011 15:23
by tinni77
Ef mér skjátlast ekki þá á Aron Jarl þetta allt til fyrir þig :thup: