halli32 wrote:
Jæja, ég tók vatnslásinn úr, hann snéri bara einhvernveginn á ská. Ég leitaði og leitaði að einhvers konar gati eða ör eða einhverju til að gefa vísbendingu um hvort ætti að vísa upp en fann ekkert, svo ég endaði bara á því að láta hann í þannig að hann vísaði upp-niður.
Svo setti ég allt saman aftur og ætlaði að lofttæma, en það var ekki búið að gera eftir heddpakkningarskiptin.
Ég byrjaði á því að fjarlægja bleed skrúfuna og bæta á vatnið eins og maður gerir venjulega. Ekkert flæddi útum bleed gatið.
Svo startaði ég bílnum, með bleed gatið opið sem og áfyllingargatið, og leit eftir því hvort eitthvað flæddi útum bleed gatið, svo var ekki, þá prófaði ég að loka áfyllingargatinu en það breytti engu og loks prófaði ég að blása í áfyllingargatið. Þá frussaðist smá útum bleed gatið en aldrei þannig að það flæddi út.
Nú lokaði ég báðum og þreifaði aðeins á vélinni og fann að heddið var orðið ansi heitt, tja, þannig að það var rétt svo óþægilegt að koma við það, en hitamælirinn í mælaborðinu var í 0, nálin lá niðri.
Á meðan þessu öllu stóð hafði ég hita og blástur í botni í miðstöðinni en það kom aldrei neinn hiti.
Var ég að gera eitthvað vitlaust í tilraunum mínum til að lofttæma?
Gefur þetta einhverjar fleiri vísbendingar um hvað gæti verið að?
Takk fyrir svörin
Ef það flæðir ekki út um áfyllingargatið þegar þú blæst í það er þá ekki líklegt að þú hafir ekki sett nóg af kælivökva á kerfið?