bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=50666
Page 1 of 1

Author:  halli32 [ Thu 21. Apr 2011 01:47 ]
Post subject:  Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

Daginn

Nýlega var skipt um heddpakkningu á bílnum mínum (og í leiðinni vatnsdælu og vatnslás), E34 520iA með M20 vél.
Nú þegar ég læt hann í gang virðist kælivökvinn fara að sjóða nokkuð fljótlega, samt hitnar miðstöðin ekkert þó hún sé á fullum hita og fullum blæstri.

Ég prófaði að hafa vélina í gangi og bæta á vatnskassann, svo opnaði ég "bleed" skrúfuna á vatnskassanum og þá rauk gufa upp. Ég leyfði henni að blása þar út í smástund en ákvað svo að láta bleed skrúfuna aftur og drap á bílnum.

Mæliborðið sýnir enga breytingu á hita vélarinnar, nálin haggaðist ekki.

Getur einhver hér getið sér til um hver orsökin gæti verið?

Author:  srr [ Thu 21. Apr 2011 01:58 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

Snýr vatnslásinn rétt í húsinu?

Það er nefnilega hægt að snúa honum vitlaust.

Author:  halli32 [ Thu 21. Apr 2011 02:01 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

srr wrote:
Snýr vatnslásinn rétt í húsinu?

Það er nefnilega hægt að snúa honum vitlaust.

Mig grunar nefnilega að hann snúi vitlaust, gæti það útskýrt þetta?
Skoða þetta á morgun, takk fyrir svarið!

Author:  srr [ Thu 21. Apr 2011 02:11 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

halli32 wrote:
srr wrote:
Snýr vatnslásinn rétt í húsinu?

Það er nefnilega hægt að snúa honum vitlaust.

Mig grunar nefnilega að hann snúi vitlaust, gæti það útskýrt þetta?
Skoða þetta á morgun, takk fyrir svarið!

Gæti alveg verið hluti af orsökinni.

Getur líka prufað að kíkja á þetta:

http://www.bmwe34.net/E34main/Maintenan ... cement.htm

Author:  urban [ Thu 21. Apr 2011 03:39 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

Vatnslásinn er ekki að virka rétt.

hvort sem að hann er bilaður eða snýr vitlaust.

Author:  oddur11 [ Thu 21. Apr 2011 04:45 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

það sem er búið að segja hér fyrir ofan, vasslásinn eithvað að klikka, man þegar vasslásinn minn fór í m30 þá lýsti það sér nákvæmlega eins með bleed tappan

Author:  GunniT [ Thu 21. Apr 2011 12:46 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

Er búið að lofttæma eftir heddpakningarskiptin??

Author:  auðun [ Thu 21. Apr 2011 13:18 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

en vitið þið nokkuð hvort það sé munur á m50 og m20 vatnslás. ég á báða og þeir munu báðir passa í húsið en m20 lásinn er ónýtur, var að spá hvort ég gæti hennt m50 í þetta.

Author:  halli32 [ Fri 22. Apr 2011 00:21 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

Jæja, ég tók vatnslásinn úr, hann snéri bara einhvernveginn á ská. Ég leitaði og leitaði að einhvers konar gati eða ör eða einhverju til að gefa vísbendingu um hvort ætti að vísa upp en fann ekkert, svo ég endaði bara á því að láta hann í þannig að hann vísaði upp-niður.

Svo setti ég allt saman aftur og ætlaði að lofttæma, en það var ekki búið að gera eftir heddpakkningarskiptin.

Ég byrjaði á því að fjarlægja bleed skrúfuna og bæta á vatnið eins og maður gerir venjulega. Ekkert flæddi útum bleed gatið.
Svo startaði ég bílnum, með bleed gatið opið sem og áfyllingargatið, og leit eftir því hvort eitthvað flæddi útum bleed gatið, svo var ekki, þá prófaði ég að loka áfyllingargatinu en það breytti engu og loks prófaði ég að blása í áfyllingargatið. Þá frussaðist smá útum bleed gatið en aldrei þannig að það flæddi út.
Nú lokaði ég báðum og þreifaði aðeins á vélinni og fann að heddið var orðið ansi heitt, tja, þannig að það var rétt svo óþægilegt að koma við það, en hitamælirinn í mælaborðinu var í 0, nálin lá niðri.
Á meðan þessu öllu stóð hafði ég hita og blástur í botni í miðstöðinni en það kom aldrei neinn hiti.

Var ég að gera eitthvað vitlaust í tilraunum mínum til að lofttæma?
Gefur þetta einhverjar fleiri vísbendingar um hvað gæti verið að?

Takk fyrir svörin

Author:  urban [ Fri 22. Apr 2011 02:23 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

þú ert að spá í því hvað snýr upp og niður á vatnslásinum

þú átt að spá í því hvað snýr inn og hvað út.

semsagt, ekki spá í því hvað snýr upp eða niður. heldur flippaðu honum.

það sem að er upp hjá þér núna, gæti átt að vera upp áfram, en málið er að hliðin sem að snýr að þér þegar að þú setur hann í, gæti átt að snúa frá þér, semsagt þú átt að sjá akkurat hinn hlutann af honum

Author:  Zed III [ Fri 22. Apr 2011 08:14 ]

Ef það flæðir ekki út um áfyllingargatið þegar þú blæst í það er þá ekki líklegt að þú hafir ekki sett nóg af kælivökva á kerfið?

Author:  halli32 [ Fri 22. Apr 2011 17:27 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

urban wrote:
þú ert að spá í því hvað snýr upp og niður á vatnslásinum

þú átt að spá í því hvað snýr inn og hvað út.

semsagt, ekki spá í því hvað snýr upp eða niður. heldur flippaðu honum.

það sem að er upp hjá þér núna, gæti átt að vera upp áfram, en málið er að hliðin sem að snýr að þér þegar að þú setur hann í, gæti átt að snúa frá þér, semsagt þú átt að sjá akkurat hinn hlutann af honum

Nei ég er nú alveg viss um að hann snýr rétt á þá vegu.

Author:  krayzie [ Tue 26. Apr 2011 04:14 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

ég skipti um vatnslás hjá mér um daginn og lenti einmitt í basli því ég gleymdi að lofttæma, reyndar í m52 e36, en þetta er allt sama basic dæmið.. skoðaðu myndina fyrir neðan, þú stingur þessum enda inní gatið á mótornum og lætur gúmmíhringinn snúa út..

svo til að lofttæma er gott að fylla forðabúrið og kreista báðar slöngurnar sem fara inní vatnslásshúsið þá ættiru að sjá minka í forðabúrinu í hvert skipti sem þú kreistir, svo bæta á kælivökva og halda áfram að kreista þangað til það hættir að minnka í forðabúrinu þegar þú kreistir slöngurnar.

Image

Author:  oddur11 [ Wed 27. Apr 2011 00:16 ]
Post subject:  Re: Kælivökvi sýður, miðstöð hitnar ekki

eg set nú bara slöngu ofaní forðabúrið og smá þrýsting þangað til það sprautast útum bleed tappann, svo set ég í gang og loft tæmi

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/