Page 1 of 1

Vélarljós logar, höktir (missir afl) - E39 | spurn. Post 4

PostPosted: Sat 16. Apr 2011 00:59
by Manace
Góða kvöldið spjallverjar. :)

Er á E39 523 '00 beinskiptum bíl og ég stökk inn á einum stað í kvöld í svona 3 mín, svo þegar ég kem út í bíl tek ég eftir því að vélarljósið logar (gult).
Kippti mér svosem ekkert upp við það en svo þegar ég er að taka af stað fæ ég nánast ekkert útúr bílnum (mér fannst eins og ég væri að taka af stað í 5. gír) Ef ég steig hann þá var þetta eins og 70 hp rolla, allavega miðað við það sem hann skilar venjulega. Svo drap ég á honum og setti aftur í gang og hann lét alveg eðlislega eftir það í svona 5 mín og þá kom vélarljósið aftur (en bíllinn lét samt alveg eðlilega). Þá fór ég bara heim og lét þetta gott heita.

Ætla með hann í tölvu á morgun eða eftir helgi en langaði að heyra á ykkur hvað ykkur dettur í hug?
Eitthverjar hugmyndir.

PS. PLÍS ekki segja MAF skynjari það væri "not cool" (er með K&N síu)
svo ætla ég að giska á að ég fái nokkur comment um að fjarlægja síuna :oops:

Re: Vélarljós logar og bíll höktir (missir afl) - E39

PostPosted: Sat 16. Apr 2011 12:34
by 300+
Háspennukefli eða sveifarásskynjari finnst mér líklegt

Re: Vélarljós logar og bíll höktir (missir afl) - E39

PostPosted: Sat 16. Apr 2011 17:03
by IceDev
Kannast við þetta. Lenti nákvæmlega í því sama með minn 523. Þá var það einmitt sveifarásskynjarinn.

Re: Vélarljós logar og bíll höktir (missir afl) - E39

PostPosted: Sat 16. Apr 2011 20:56
by Manace
Hvernig er það að komast að og skipta um þennann skynjara?