Page 1 of 1

17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Thu 14. Apr 2011 21:46
by bjarnikarls
Veit einhver hvort að 17" BMW Style 5 felgur passi undir BMW 316 árgerð 2004?

Held að þetta séu felgurnar:

http://felgenkatalog.auto-treff.com/?felge=440

Þetta eru felgurnar sem eru á mynd 3 af style 5 felgunum

kv. Bjarni

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 10:53
by bjarnikarls
Er enhver sem að veit þetta?

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 11:00
by ///MR HUNG
Það er allt annað offset á þessum felgum....fyrir utan hversu forljótar þær eru.

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 11:22
by JOGA
Felgurnar passa ekki í grunninn.

Eru samt vinsælar undir þrista og eru þá notuð önnur nettari dekk en eiga að vera orginal á þristum.
T.d. 215/40 eða 205/45.

Mér finnst þetta flottar felgur og þetta væri flott undir E46 en það er ALGJÖRT möst að lækka bílinn til þetta looki vel.

Image
Image

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 11:29
by JOGA
Ef þetta er orginal undan E31 þá getur samt verið að offsettið sé orðið of lágt. ET10 að framan er svolítið gróft :)
Ef þetta er ca. ET20 þá gildir það sem ég sagði að ofan.

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 12:12
by bjarnikarls
Nú veit ég ekkert um þetta, en get ég þá fengið e-h annað offset til að þetta passi? ef svo hvar gæti ég fengið það?

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 12:37
by JOGA
bjarnikarls wrote:Nú veit ég ekkert um þetta, en get ég þá fengið e-h annað offset til að þetta passi? ef svo hvar gæti ég fengið það?


Offsett er mælistærð. Segir til um fjarlægð miðju eða nafi á felgu frá miðju felgunnar sjálfrar. Þ.e. hversu innarlega eða utarlega felgan situr á bílnum.

Orginal er E46 með ca. ET40. Það þýðir að miðjan er 40mm frá miðju felgunnar. (S.s. nær framhlið felgunnar).
Þessar felgur eru til í ýmsu offsetti en algengt er ET20. Þá situr felgan 20mm utar en orginal. (S.s. fer nær bretti).
Ef offsett er ET10 er felgan komin ca. 30mm utar og þá orðin mikil hætta á að dekk rekist í bretti.

Getur ekki hækkað offsett á felgu nema að láta renna af henni sem er ekki æskilegt.
Getur lækkað offsett með því að setja spacer á milli.

Vonandi segir þetta þér eitthvað.

Re: 17" BMW Style 5 felgur passa þær undir 316 árgerð 2004

PostPosted: Fri 15. Apr 2011 13:38
by bjarnikarls
Takk kærlega fyrir þetta , nú skil ég þetta