Page 1 of 1
Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 16:21
by Árni S.
Núna er vesenið byrjað aftur á blæjubílnum. Þetta gerðist fyrst þegar ég þreif hann þá drap bíllinn á sér á leiðinni heim og fór svo ekki aftur í gang. Svo gerðist þetta nokkrum sinnum aftur seinna þegar mjöög mikil rigning var eða ný búinn að þrífa bílinn. Þegar þetta gerist drepur bílinn á sér enn það er hægt að starta nema það að bíllinn fer alls ekki í gang ,,, kemur ekki bensín að mótor
Ég hélt að þetta væri komið í lag þegar ég þétti alt í kringum bensíndæluna og tengin þar og bíllinn hafði ekki verið með neitt svona vesen í tvo mánuði þrátt fyrir að vera keyrður daglega í öllu veðri en núna var þetta að gerast aftur.
Hvað / hvar getur þetta verið?
Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 17:51
by tinni77
Lítill (eða það má deila um það) fugl hvíslaði því að mér að þú vissir allt um BMW

Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 19:17
by Árni S.
tinni77 wrote:Lítill (eða það má deila um það) fugl hvíslaði því að mér að þú vissir allt um BMW


tinni vertu úti

Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 19:27
by tinni77
Árni S. wrote:tinni77 wrote:Lítill (eða það má deila um það) fugl hvíslaði því að mér að þú vissir allt um BMW


tinni vertu úti

Get það ekki, er buzy við að stjórna stærstu matvöruverzlun landsins

Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 19:44
by Árni S.
Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 19:59
by tinni77
EF ÉG ER ÚTI, HVERNIG Á ÉG ÞÁ AÐ STJÓRNA HÉRNA INNI

Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 14. Apr 2011 21:43
by Dóri-
prófaðu að skipta um bensíndælu releyið það er blátt 5 pinna hjá 2 öðrum releyum upp við öryggjaboxið líklegast hvítu og brúnu.
hef oft lent í að þau fari.
Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Fri 15. Apr 2011 00:02
by BMW_Owner
eða bara næst þegar hann gerir þetta þá vera með mælir í bílnum s.s (gulan mælir fæst í verkfæralagernum) og lætur einhvern starta á meðan þú mælir voltin hjá bensíndælunni(í tenginu) aftaní og ef það koma engin volt þar þá tjékkarðu á öryggjum og relayum ef það er í lagi þá myndi ég skoða rafmagnslögnina sjálfa s.s vírana sem liggja að bensíndælunni, ef þeir eru tærðir eða eitthvað þá getur margur skítur skeð

annars bara bensíndælan,
splæsir á mig pulsu ef ég hef rétt fyrir mér

Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Wed 27. Apr 2011 20:59
by Árni S.
jæja þá er ég búinn að athuga bensíndæluna. og þetta er ekki hún ... vírarnir frá relay að bensíndælu eru í lagi enn það kemur ekki signal frá tölvuni. relayið er í lagi... sem bendir til þess að þetta er einhver skynjari sem leiðir út áður enn hann getur sent signal að tölvuni .... hefur einhver lent í þessu ? eða getiði nefnt skynjara eða bara eitthvað sem myndi láta tölvuna neita að senda straum á bensíndæluna.
er á kafi í rafmagnsteikningum eins og er .... væri fínt að fá tillögur

Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Wed 27. Apr 2011 21:42
by crashed
lýsir sér mjög svipað og í E36 sem ég átti (reyndar drap hann aldrei á sér uppúr þuru) og þeir hjá eðalbílum tókku hann og skoðuðu eftir að hann var búinn að haga sér svona í rúm 2 ár og var þvílíkt vesen fyrir þá að finna þetta en það reyndist vera ónítur sveifar ás skynjari, eftir að þeir skyftu um hann að þá var bíllinn mjög góður og klikaði aldrei í starti
Re: Bleytu vandamál E36 325i

Posted:
Thu 28. Apr 2011 00:04
by RunarN
Athugaðu vélartölvuna, hvort að það er bleyta þar sem hún er, það eru affallstappar þar í kring sem eiga það til að stíflast og þá fer allt á flot í kringum tölvuna.
Taka svo tölvuna í sundur og þrífa upp með kontakt hreinsi, ættir að sjá ef að þetta hefur verið blautt í einhvern tíma, kemur hálfgerð tæring á prentplöturnar/tinið.