Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Wed 06. Apr 2011 23:11
by bjornr
Sælir meðlimir,
Ég lenti í því óskemmtilega atviki að blæjan á Z3 bílnum mínum var skorin til að komast inn í hann. Vitið þið um einhvern sem hefur reynslu af þessum málum? Ef þetta gengur ekki þá þarf ég að kaupa nýja blæju, hefur einhver hér pantað blæju af netinu? Ef svo er hvernig var hún?
Kveðja,
Björn
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Wed 06. Apr 2011 23:42
by kalli*
Eru blæjur ekki rándýrar ? Er ekki best þá að fara með þetta í tryggingafélaginu þínu?
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Thu 07. Apr 2011 00:11
by Danni
Ég veit til þess að ömmudriver hérna á spjallinu keypti blæju í E30 af eBay og fékk Auðun bólstrara til að skipta um hana. Held að það sé besta leiðin til að standa að þessu, kaupa ódýrt á eBay og fá bólstrara til að skipta um. Kostar samt held ég slatta, þó ég veit það ekki alveg..
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Thu 07. Apr 2011 09:13
by Zed III
ömulegt að lenda í svona
Eru þessar blæjur nokkuð svo dýrar ? Ég las nokkur diy fyrir svona swapp og held þetta sé alveg gerlegt, tala ekki um ef það eru 2 sem hjálpast að við skiptin.
Ég væri amk til í að vita hvað þetta kostar.
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Thu 07. Apr 2011 15:21
by maggib
það náttúrulega fær ekkert að vera í friði
samhryggist
ég keypti blæjuna á baur-inn hjá þessum á ebay.de
http://www.verdeck-express.de/bara sáttur og keypti góðar leiðbeiningar
með ljósmyndum með og græjaði þetta bara sjálfur.
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Thu 07. Apr 2011 18:52
by ömmudriver
Leiðinlegt að heyra
Ég keypti eins og Danni segir blæju af verslun á Ebay og það var ekkert mál að versla hana og eins var mikð úrval bæði af saumum, litum og efni sem blæjan var saumuð úr. Blæjuna fékk ég senda í pósti og var heildarkostnaður með vinnunni hjá Auðunni við að rífa gömlu blæjuna af og setja nýju á(sem var dagsverk BTW) rétt tæpar 150.000kr.
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Thu 07. Apr 2011 19:21
by Zed III
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Thu 07. Apr 2011 19:30
by maggib
ef þú getur fengið góðar leiðbeiningar með... game on!
mjög gaman að gera þetta sjálfur, en þá þarftu leiðbeiningarnar!!!
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Sat 09. Apr 2011 00:24
by bjornra
Takk fyriir svörin, ég held að þetta sé bara málið. Verð hingað komið rúmlega kr. 50.000,-
Ertu að spá í að kaupa þér nýja blæju?
Vertu í sambandi.
Björn s: 825-2263
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Sat 09. Apr 2011 07:20
by Zed III
bjornra wrote:Takk fyriir svörin, ég held að þetta sé bara málið. Verð hingað komið rúmlega kr. 50.000,-
Ertu að spá í að kaupa þér nýja blæju?
Vertu í sambandi.
Björn s: 825-2263
Hef verið að spá í því en ætli það verði nokkuð fyrr en fyrir næsta sumar. Það eru töluvert mörg to-do items á listanum eins og er.
Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Tue 12. Apr 2011 01:02
by ellipjakkur
ég hef sett svona blæju á sjálfur,, kom ágætlega út og ekkert svo mikið mál ef tveir hjálpast að,, ég fékk upplýsingar hjá auðuni bólstrara með hvaða lím átti að nota og fleira

Re: Viðgerð á blæju - kaup á nýrri blæju

Posted:
Tue 12. Apr 2011 07:56
by Berteh
Þetta ætti að flokkast undir "framrúðutryggingu" eða rúðutryggingu eins og þetta heitir í dag, allar rúður (nema topplúga) eru tryggðar undir þessu að mig minnir. Þá borgaru bara % af blæjunni+ísetningu