Page 1 of 1
E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 09:30
by agustingig
Heyrðu núna lenti ég í smá veseni í gær, ég var að skipta um öxul í bílnum og gekk allt svaka vel en síðan þegar ég er búinn að setja allt saman aftur og ætla að setja rónna á í miðjuna á nafinu, þá passar hún ekki uppá öxulinn. Öxullinn sem fór úr er 318i öxull en sá sem fór í er 325i samansoðinn í miðjuni, hefur einhver annar lent í þessu? veit ekkert hvað ég á að gera??
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 10:31
by Einarsss
er ekki bara önnur ró á 325 öxlum vs minni gerðinni?
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 11:28
by Axel Jóhann
Jú ég held að róin sé mismunandi.
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 11:45
by agustingig
Axel Jóhann wrote:Jú ég held að róin sé mismunandi.
Veistu um einhvern sem á svona ró? er uppí bogl núna og þeir finna bara sama part nr-ið á bæði 325 og 318, og þeir eiga hana ekki einusinni til..
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 12:37
by Einarsss
Getur verið að það sé öfugur skúfgangur á þessu?
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 18:21
by Alpina
Einarsss wrote:Getur verið að það sé öfugur skúfgangur á þessu?
Nei
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 22:17
by Mazi!
settiru bara annan 325 öxulinn í ?
Re: E30 öxlar

Posted:
Wed 06. Apr 2011 23:57
by agustingig
Mazi! wrote:settiru bara annan 325 öxulinn í ?
Fékk bara einn, breytir engu. sama lengd og þykkt á öxlinum, eini munurinn er þessi suða í miðjuni..