Page 1 of 1

M52B28 - Startvandræði

PostPosted: Fri 01. Apr 2011 21:51
by gunnar
Datt í hug að leita ráða hjá ykkur varðandi smá vandamál sem hefur verið að hrjá Touring hjá mér núna í nokkra daga.

Þetta byrjaði með því að einn daginn þegar ég startaði honum þá fór bíllinn ekki í gang í fyrsta starti. Startaði strax aftur og ekkert gerðist. Hinkraði svo í 20-30 sec og bíllinn rauk í gang.

Svo keyrði ég bara bílinn í nokkra daga og ekkert gerðist. Svo byrjaði þetta aftur og hefur verið að ske núna annað slagið yfir daginn. Kannski af 6-7 ræsingum þá gerist þetta alveg 2-4. Orðið frekar þreytt.

Er eitthvað sem ykkur dettur í hug sem ég á að skoða fyrst ? Þetta getur verið fjandi margt nefnilega :lol:

Re: M52B28 - Startvandræði

PostPosted: Fri 01. Apr 2011 22:51
by gstuning
Hvernig lýsir þetta sér akkúrat

hann snýr vélinni enn hún tekur ekki við sér?

Hún tekur ekkert við sér sama hvað þú starta lengi í fyrstu tilraun?
svo 30sek seinna þá fer hann alltaf í gang?

Re: M52B28 - Startvandræði

PostPosted: Fri 01. Apr 2011 23:10
by gunnar
gstuning wrote:Hvernig lýsir þetta sér akkúrat

hann snýr vélinni enn hún tekur ekki við sér?

Hún tekur ekkert við sér sama hvað þú starta lengi í fyrstu tilraun?
svo 30sek seinna þá fer hann alltaf í gang?


Bingó

Re: M52B28 - Startvandræði

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 00:12
by Lindemann
prófaðu að fylgjast með því hvort bensíndælan fer í gang.
hef lent í svipuðu þar sem bensíndælurelay var að stríða.

Re: M52B28 - Startvandræði

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 00:15
by ValliFudd
Lenti í því að ein sella í rafgeymi fór hjá mér, hann var bara 10 volt. Sem þýðir að dælan fór bara stundum í gang.. Gat startað í hálftíma og ekkert, en svo næsta dag, þá var bensíndælan alveg sátt við 10 voltin og bíllinn rauk í gang.. Bara hugmynd..

Re: M52B28 - Startvandræði

PostPosted: Sat 02. Apr 2011 02:46
by krayzie
lýsir sér eins og relay-ið fyrir dæluna.. það á að tikka í relay-inu þegar það er svissað á, getur reynt að finna það og athugað hvort það sé að tikka til að geta útilokað það. lenti í svipuðu veseni með civic, þá var relay-ið að faila.