Page 1 of 1
Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 17:01
by Vlad
Langar að forvitnast hvernig það er gert þar sem rúðuþurrkurnar mínar eiga það að nuddast í brúnina á húddinu og fer það frekar mikið í taugarnar á mér...
Með von um góð svör...
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 17:11
by ömmudriver
Eru báðir armarnir að nuddast í húddið eða bara hægrii?
Þetta vandamál var til staðar á sjöunni minni þegar ég keypti hana og voru armarnir sjálfir færðir um nokkur hök til hægri þannig að þeir hættu að rekast í húddið.
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 17:42
by Vlad
Held þetta sé bara hægri armurinn...
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 18:26
by jon mar
Ég held að þetta sé nú bara standard slit í þurkubúnaðinum eftir öll þessi ár.
Minn er svona og ég hef hreinlega ekki haft mig í það að kaupa nýtt þurkumekkanó til að losna við slitið í búnaðinum.
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 18:38
by Vlad
jon mar wrote:Ég held að þetta sé nú bara standard slit í þurkubúnaðinum eftir öll þessi ár.
Minn er svona og ég hef hreinlega ekki haft mig í það að kaupa nýtt þurkumekkanó til að losna við slitið í búnaðinum.
Já mjög líklega það sem er að, var eitthvað reyna fikta í þessu áðan en þetta fór alltaf í sömu stöðu aftur.
Spurning hvort maður þurfi að fara í B&L og gefa þeim allavega annað nýrað og 4 fingur til að fá þetta...
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 19:05
by ömmudriver
Ég væri alveg til í að heyra hvað nýtt rúðuþurrkumekkanó kostar í dag
Mig minnir að það hafi kostað um 30.000kr. árið 2006

Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 19:10
by Vlad
ömmudriver wrote:Ég væri alveg til í að heyra hvað nýtt rúðuþurrkumekkanó kostar í dag
Mig minnir að það hafi kostað um 30.000kr. árið 2006

mitt gisk 170.000 þúsund.
30.000 væri mjög hentugt í dag svo sem

Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Fri 01. Apr 2011 20:24
by IngóJP
Ég keypti svona nýtt í e34 sem ég átti kostaði eitthvað undir 30.000 2008
fékk þetta í TB
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Tue 05. Apr 2011 22:25
by takecover
ætla að versla mér þurkubrakkedið um mánaðar mótinn.. það kostar 27 þús nýtt í b&l og 23 þús með kraftsafslætti. maður grætur það svo sem ekki
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Wed 06. Apr 2011 01:25
by Vlad
Við nánari athugun þá er húddið einnig skakkt.... svo það væri fínt að fá upplýsingar um hvernig það sé stillt...

Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Wed 06. Apr 2011 11:35
by Axel Jóhann
Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Sat 09. Apr 2011 04:03
by Vlad
Axel Jóhann wrote:
Skuldar mér nýjann bíl Axel.....

Re: Stilla húdd í e34.

Posted:
Mon 11. Apr 2011 13:21
by IngóJP
hauksi á kraftinum er að selja svona bracket ætti að vera í fínu standi allaveganna ekki mikið notaður bíll
