Passar þetta á e46 ´03 Touring?

Posted:
Fri 01. Apr 2011 01:08
by ViggiRS
viewtopic.php?f=2&t=48144Þetta eru "18 felgur undan e60.
Var að vísu að spá í annari dekkjastærð en veit ekki alveg hvað ég kemst upp með stórt...
Smá hjálp - Thule í boði
Re: Passar þetta á e46 ´03 Touring?

Posted:
Fri 01. Apr 2011 08:36
by JOGA
Þessar felgur eru 8" breiðar og með ET43.
18" var ekki algeng stærð orginal á E46 en var til og þá með örlítið hærra offsett.
Sem sagt þetta ætti að smella undir. Það munar bara 3 mm á orginal offsetti sem er ekki neitt. (ET43 situr 3 mm utar í hjólaskálinni en ET47)
Ætti að fylla ágætlega upp í sökum breiddar en þær sitja svona aðeins innar en þessar týpísku 18" felgur sem verið er að setja undir svona bíla. After market felgur eru oftast í ca. ET35 á E46 og jafnvel lægra í stretch heiminum.
Orginal dekk á þessa breidd undir E46 er 225/40/18
Getur sett breiðara að aftan en finnst það óþarfi í ljósi þess að felgurnar eru allar jafn breiðar.