Page 1 of 2

Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 15:26
by Geysir
Daginn.

Nú hef ég ekki átt bíl með M30 mótor áður en ég tel að mótorinn sé að ganga heldur gróft í hægagangi og alveg þokkaleg bensínlykt í gangi.
Er þetta kannski bara eðlilegt fyrir M30 keyrðan 270 Þús?
Ætla nú að taka eftir mánaðarmót og skipta um kerti og smyrja en er eitthvað annað sem að kraftsmeðlimum dettur í hug.

Veit reyndar að það á eftir að skipta um vatnslás og ætla ég að plata meistara Axel Jóhann í það eftir mánaðarmótin.

Og svo eitt, það er alveg í góðu að keyra mótorinn á bara venjulegri 95 oktan? Þarf að kaupa eitthver bætiefni?

Með fyrirfram þökk, Atli Þór

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 15:31
by jon mar
M30 er mjög grófur motor. Asnalegur hægagangur er hinsvegar kannski vacum leki eða lélegar hosur eða janvel slakur ICV.


Ef þú getur haldið á bíllykli hjálparlaust þá geturðu skipt um vantslás, sérstaklega ef mig rámar eitthvað í brasið sem þú hefur verið að standa í áður.


Bensínlykt......dunno, svo margt. Minn angar stundum ef hann er í þannig stuði.


Þú keyrir þetta bara á 95okt, ástæðulaust og fáránlegt að gera annað. Getur alveg notað innspítingar og spíssahreinsi útí bensínið ef þú vilt annað veifið, en þú ákveður það bara sjálfur.

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 15:40
by Geysir
Hef nú skipt um sjálfskiptingu í E28 og mótor í E46 þannig að maður ætti kannski að leggja í vatnslásaskipti í M30 :lol:

Renni yfir mótorinn í vikunni. Alveg ótrúlega þéttur og góður virðist samt vera.

Svo er þetta sennilega bara paranoja í manni með nýja gripinn.

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 15:46
by jon mar
22 ára gamall bíll með kannski næstum orginal dót frá '89 á flestum ef ekki öllum stöðum.

Skoða vel vacum og allt þetta shit, og jafnvel er vinsælt í útlöndum að skipta um spíssa og spíssagúmmí í þeim með góðum niðurstöðum.

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 16:46
by srr
Mæli með þessari síðu Atli,,,,allskonar DIY fyrir E32 og M30,,,

http://www.e38.org/e32/

Vatnslásskipti á M30 eru frekar easy,,,,en mjög auðvelt að brjóta vatnsláshúslokið í skiptunum.
Ekki verra að vera með eitt svoleiðis við hendina ef þitt skyldi brotna.

Hérna sérðu hvernig þetta lítur út,,,,
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=11&fg=35

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 17:05
by Geysir
srr wrote:Mæli með þessari síðu Atli,,,,allskonar DIY fyrir E32 og M30,,,

http://www.e38.org/e32/

Vatnslásskipti á M30 eru frekar easy,,,,en mjög auðvelt að brjóta vatnsláshúslokið í skiptunum.
Ekki verra að vera með eitt svoleiðis við hendina ef þitt skyldi brotna.

Hérna sérðu hvernig þetta lítur út,,,,
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=11&fg=35


Meistari Skúli! Þakka :thup:

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 17:46
by jon mar
getur líka skoðað http://www.bmwe34.net/

E34 specific síða með fullt af DIY og info.

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 18:41
by saemi
M30 á ekkert að vera rosa grófur. Hins vegar getur hann verið það ef hann er ekki ventlastilltur í mörg ár og eitthvað af fuel systeminu er bilað

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 18:44
by jon mar
saemi wrote:M30 á ekkert að vera rosa grófur. Hins vegar getur hann verið það ef hann er ekki ventlastilltur í mörg ár og eitthvað af fuel systeminu er bilað


Þetta er helgrófur mótor hliðiná því sem flestir eru vanir. M50 er td allt annað líf.

En það er rétt að ventlastilla þetta relgulega. Ég geri það svona einu sinni á ári eða svo.

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 21:47
by auðun
eruði að ventlastilla bara með föler eða? ég þyrfti að fara að kíkja á það hjá mér á m50

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 21:51
by birkire
ventlastillir lìtið a m50, vökvaundirlyftur

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 21:52
by jon mar
auðun wrote:eruði að ventlastilla bara með föler eða? ég þyrfti að fara að kíkja á það hjá mér á m50


Maður ventlastillir ekki m50.


birkire wrote:ventlastillir lìtið a m50, vökvaundirlyftur


þú vannst :lol:

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sat 26. Mar 2011 22:23
by auðun
ooo jæja afsakið strákar.

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sun 27. Mar 2011 00:41
by Lindemann
Það var skipt um knastás og heddið yfirfarið og eitthvað fleira í ca. 100þús km

en hann var alltaf frekar grófur og ég kannast líka við bensínlyktina......fannst það bara eðlilegt :)

Re: Grófur hægagangur og bensínlykt. M30B30

PostPosted: Sun 27. Mar 2011 00:59
by Danni
Það er allavega bensínfnykur af minni M30 í lausagangi, en þegar ég fékk hann þá bókstaflega dropaði önnur bensínslangan að vélinni svo ég skipti um þær báðar en það er ennþá eitthvað lítið smit á einum stað.

Ég myndi bara fara yfir bensínslöngurnar í húddinu og athuga hvort einhverjar af þeim eru blautar.