bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
vandræðagangur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=5009 |
Page 1 of 1 |
Author: | biggip [ Mon 15. Mar 2004 23:39 ] |
Post subject: | vandræðagangur |
Sælir félagar, ég ætlaði bara að tékka hvort þið könnuðust við eða hafið heyrt um vandamál sem kom upp hjá mér í dag. Ég var að fara heim úr vinnunni og setti bílinn í gang en þá gerði hann ekki alveg það sama og venjulaga. Venjulega þá fer hann aðeins uppá snúning (kannski 1200-1300) þegar ég starta og dettur svo niður í c.a. 700 og er þar. En í dag þá fór hann uppí c.a. 2000 snúninga og eftir smá stund (c.a. 1 mín), þá seig snúningurinn hægt niður, en samt ekki langt. Hann gengur núna á um 1500 snúningum og fer uppí c.a. 17-1800 snúninga, stanslaust, hann bara er alltaf að fara frá þetta 1500 til 17-1800 og dettur svo niður í 1500 aftur. Sama hvort ég er að keira eða er með hann kyrrstæðan í lausagangi. Vitiði hvað þetta getur verið?????????????? Biggi Pé 325i 92" |
Author: | gstuning [ Tue 16. Mar 2004 00:30 ] |
Post subject: | |
Hljómar eins og lausagangs ventillinn sé að stríða þér, hann er líklega alveg opinn og hleypur því fullt af lofti, vélin verður að viðhalda réttri mixtúru og því er hún að dæla bensíni samkvæmt lofti,, ég myndi kíkja á hann að hann sé ekki fastur eða eitthvað líkt,, |
Author: | biggip [ Tue 16. Mar 2004 09:47 ] |
Post subject: | |
Ok, hann gæti verið fastur og að stríða mér, en fastur hvar?? Ég veit ekki hvar hann er. Biggi Pé |
Author: | arnib [ Tue 16. Mar 2004 10:02 ] |
Post subject: | |
Rauðhringaður. Þú getur tekið hann úr og spreyjað einhverju góðu inn í hann (Chain Lube / WD40?) og náð mestu drullunni úr honum. |
Author: | biggip [ Tue 16. Mar 2004 16:14 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir skjót og góð svör en ekki var það þessi nemi sem var bilaður, það virðist hafa verið nemi sem er aðeins neðar, rétt fyrir neðan soggreinina sem var óhreinn. Ég sprautaði bara einhverju hreinsiefni sem losar um sót, drullu og annan óþverra beint inná vélina (tók gúmmí olnbogann sem er þarna á myndinni nr#3 í burtu og sprautaði framhjá spjaldinu sem hleypir loftinu inná vélina). Einnig setti ég hreinsiefni útí bensínið sem hreinsar upp öll óhreinindi sem verða á leið þess. Hann virðist vera kominn í lag og er ekki búinn að taka eitt feilpúst síðan. Biggi Pé |
Author: | arnib [ Tue 16. Mar 2004 16:16 ] |
Post subject: | |
biggip wrote: Hann virðist vera kominn í lag og er ekki búinn að taka eitt feilpúst síðan.
Frábært! ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |