bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Innflutningur á vél/varahlutum
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=50066
Page 1 of 1

Author:  Skúli [ Thu 17. Mar 2011 22:00 ]
Post subject:  Innflutningur á vél/varahlutum

Vinur minn er að hugsa um að flytja inn varahluti í s62 eða heila vél, vitið þið hvaða gjöld maður þarf að borga fyrir utan flutningskostnað?

Þarf t.d. að borga toll og virðisauka eða gilda einhverjar aðrar prósentur þegar kemur að varahlutum?

Hvar er best að kaupa svona vél? Er t.d. sterkur leikur að kaupa af ebay eða eru til einhverjar fleiri síður sem gætu átt heilan s62 mótor eða varahluti?

Author:  Alpina [ Fri 18. Mar 2011 07:19 ]
Post subject:  Re: Innflutningur á vél/varahlutum

Bestu kaupin eru án vafa ad ég held ,, komplett mótor,,

Author:  JonHrafn [ Fri 18. Mar 2011 08:35 ]
Post subject:  Re: Innflutningur á vél/varahlutum

Þegar ég keypti túrbínu í hiluxinn þá var það bara vaskur ofan á, engin tollur.

Author:  SteiniDJ [ Fri 18. Mar 2011 08:40 ]
Post subject:  Re: Innflutningur á vél/varahlutum

Ég fann nú ekki bílvélar, en hefði haldið að það væru 0% tollar, 25.5% VSK og 15% vörugjöld.

Þannig þið reiknið:

(((Kaupverð + Flutningur)*1.15)*1.255) og fáið þar með lokaverð (þ.e. ef tollur er enginn) en alltaf gott að bæta nokkrum þúsundköllum við, svo ekkert komi ykkur á óvart.

Author:  kalli* [ Fri 18. Mar 2011 09:05 ]
Post subject:  Re: Innflutningur á vél/varahlutum

Er þetta fyrir mótor á M5-inum sem að er búinn að vera fyrir utan TB í ég veit ekki hversu marga tugi mánuði ?

Author:  Skúli [ Fri 18. Mar 2011 13:08 ]
Post subject:  Re: Innflutningur á vél/varahlutum

Nei þetta er ekki bíllinn fyrir utan TB. Hvað haldiði að flutningskostnaður sé ca. á svona mótor?

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/