Page 1 of 1

vantar hjálp hjá vitrari mönnum ath allt komið í lag

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 16:38
by hope
í dag þegar eg var að fara úr skólanum kemur eithver hrystingur í bílinn minn (525i e34) og leiðindar hljóð,þetta gerðist þegar ég var í 2000-2700 snúningum en ekki í bakk gír var að hugsa hvort að þetta væri hugsanlega drifið eða kassinn ,titringurinn kom aftan úr bílnum.

spurnigin er hvað þetta gæti verið ?
allar tillögur vel þeignar

birkir örn sveinsson
7779937

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 17:49
by Alpina
1) tjakka bílinn upp og kíkja ??

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 17:52
by skulzen
Var ekki eitthvað svipað hérna með e46 bíl fyrir stuttu, þá var aftari bolti sem hélt dríf kögglinum laus eða eitthvað álika.

Einmitt mjög svipað titringur við akstur en ekki við að bakka

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 17:56
by hope
Alpina wrote:1) tjakka bílinn upp og kíkja ??

takk, ég hef bara ekki mikið vit á þessu en eg reyni einsog eg get

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Wed 23. Feb 2011 18:06
by saemi
Er þetta hristingur frá vélinni eða ótengt snúningshraða. Missir hann afl við þetta?

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 01:31
by hope
takk eg skal kíkja þetta í drifinu en nei hann missir ekki afl

eg var líka að pæla hvort að þetta væri eithvað bensíntengt

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 01:33
by hope
saemi wrote:Er þetta hristingur frá vélinni eða ótengt snúningshraða. Missir hann afl við þetta?

þetta kemur ekki frá vélini ,en já ef ég er yfir 2700snúnigu er þetta í lagi en allt undir er hell

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 01:39
by tinni77
hope wrote:
saemi wrote:Er þetta hristingur frá vélinni eða ótengt snúningshraða. Missir hann afl við þetta?

þetta kemur ekki frá vélini ,en já ef ég er yfir 2700snúnigu er þetta í lagi en allt undir er hell


Hann er bara að segja þér að þú eigir að standa sig 18 bláa,,

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 10:14
by saemi
hope wrote:
saemi wrote:Er þetta hristingur frá vélinni eða ótengt snúningshraða. Missir hann afl við þetta?

þetta kemur ekki frá vélini ,en já ef ég er yfir 2700snúnigu er þetta í lagi en allt undir er hell


Það hlýtur að vera tengt drifrásinni ef þetta er algjörlega tengt snúningshraða. Þetta gerist þá við mismunandi aksturshraða þegar bíllinn skiptir um gíra. Þú ert örugglega ekki að meina að þetta gerist við ákveðinn ökuhraða?

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 11:31
by auðun
þetta gerðis í 520 bílnum hjá mér, þá var lokið á drifinu brotið og farið að lækka olíumagnið á drifinu. svo einn daginn þá brotnaði drifið eða allar tennur á pinjóninum fóru. það lýsti sér einmitt svona. gæti verið að það sé farið að brotna úr tönn eða eitthvað? Titringurinn eða höggið þegar drifið brotnaði hefur brotið driflokið hjá mér. allavega eflaust drifið.

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 12:19
by hope
saemi wrote:
hope wrote:
saemi wrote:Er þetta hristingur frá vélinni eða ótengt snúningshraða. Missir hann afl við þetta?

þetta kemur ekki frá vélini ,en já ef ég er yfir 2700snúnigu er þetta í lagi en allt undir er hell


Það hlýtur að vera tengt drifrásinni ef þetta er algjörlega tengt snúningshraða. Þetta gerist þá við mismunandi aksturshraða þegar bíllinn skiptir um gíra. þú ert örugglega ekki að meina að þetta gerist við ákveðinn ökuhraða?



nei algörlega tengt snúnigshraða

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Thu 24. Feb 2011 16:41
by tomeh
skulzen wrote:Var ekki eitthvað svipað hérna með e46 bíl fyrir stuttu, þá var aftari bolti sem hélt dríf kögglinum laus eða eitthvað álika.

Einmitt mjög svipað titringur við akstur en ekki við að bakka


E36 og boltin var brotin ;)

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Fri 25. Feb 2011 08:39
by Axel Jóhann
Ef thú ert hérna á höfuðborgarsvæðinu get ég kíkt á þetta, hringdu bara, símanr er hér að neðan!

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum

PostPosted: Tue 01. Mar 2011 22:41
by Breed
Þú ættir bara að tjakka bílinn upp að aftan, skoða alla púða, skoða hvort eitthvað sé beyglað t.d. drifskaft o.fl... Eða gáð hvort þetta gæti mögulega verið ónýt felga eða tætt dekk jafnvel laust dekk. En þetta er hugsanlega eitthvað með drifið sjálft að gera...

Re: vantar hjálp hjá vitrari mönnum ath allt komið í lag

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 11:26
by Axel Jóhann
Þetta hefur ekkert komið aftur? :lol: