Page 1 of 1

VANOS þéttihringir

PostPosted: Sat 12. Feb 2011 21:35
by bfs
Á erlendu BMW spjallsíðunum sér maður oft talað um að þéttihringir í VANOS séu gallaðir og skemmist eftir ca 30 þ. km. Það eru nokkur fyrirtæki sem eru að selja endurbættar útgáfur af þessum hringjum, td. http://www.beisansystems.com

Hefur einhver hérna reynslu af þessu? Er eitthvað til í þessu?

kv,
bfs

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Sat 12. Feb 2011 21:42
by bimmer
Ég sendi mitt Vanos út til www.drvanos.com af því að þéttihringirnir voru hættir að virka
almennilega.

Þetta virðist vera algengt og já - menn vilja meina að stock þéttingarnar frá BMW séu
ekki nógu góðar.

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 15:24
by Mr. Jones
Er þetta ekki í 540 líka þ.e einfalt, hefur það verið að klikka lika ?

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 15:33
by Alpina
Mr. Jones wrote:Er þetta ekki í 540 líka þ.e einfalt, hefur það verið að klikka lika ?


held að M62 sé ekki með Vanos

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 15:46
by Mr. Jones
Alpina wrote:
Mr. Jones wrote:Er þetta ekki í 540 líka þ.e einfalt, hefur það verið að klikka lika ?


held að M62 sé ekki með Vanos

Fann þetta miðað við vin nr. er ég með vanos
Image

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 16:40
by kalli*
Minnir að facelift 540 kom í Vanos, ekki prefacelift.

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Sun 13. Feb 2011 23:46
by Aron Fridrik
Vanos kom í M62TUB44

þær komu fyrst á markaðinn í enda árs 98 og eru því 99 árgerð af bílum allir með vanos

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Mon 14. Feb 2011 11:32
by bfs
bimmer wrote:Ég sendi mitt Vanos út til http://www.drvanos.com af því að þéttihringirnir voru hættir að virka
almennilega.

Þetta virðist vera algengt og já - menn vilja meina að stock þéttingarnar frá BMW séu
ekki nógu góðar.



Hvaða áhrif hafði þetta á bílinn? Hvernig var hann fyrir viðgerð og síðan eftir?

kv,
bfs

Re: VANOS þéttihringir

PostPosted: Mon 14. Feb 2011 12:18
by bimmer
bfs wrote:
bimmer wrote:Ég sendi mitt Vanos út til http://www.drvanos.com af því að þéttihringirnir voru hættir að virka
almennilega.

Þetta virðist vera algengt og já - menn vilja meina að stock þéttingarnar frá BMW séu
ekki nógu góðar.



Hvaða áhrif hafði þetta á bílinn? Hvernig var hann fyrir viðgerð og síðan eftir?

kv,
bfs


Þetta er ekki komið í ennþá en fyrir var bíllinn frekar slappur á lágum snúning, lifnaði við á
háum snúning. Svo ældi hann olíu útum allt.