Page 1 of 1

Stýrisskjálfti í 316 Compact...SOS

PostPosted: Sun 06. Feb 2011 14:13
by Snorri Selur
Góðan daginn,

Bimmabræður, er í vandræðum með stýrisskjálfta í 316 compact, 2000 módeli. Skjálftinn kemur og fer að virðist óháð aðstæðum eða hraða. Minna á miklum hraða, þá líka lengra frá því hægt var á ferð (bremsumál?)

Gæti þetta verið eitthvað í bremsubúnaði, eða annað sem truflar jafnvægisbúnað? Það er eitthvað sem pirrar hann svo að það brýst fram í svona köstum. Stýrið skelfur all duglega í verstu köstunum. Svo illa að ég finn til með honum.

Hafi þið glímt við eitthvað þessu líkt eða heyrt af því?

Bimmakveðjur :thup:

Selur

Með fyrirframþökkum fyrir öll viðbrögð

Re: Stýrisskjálfti í 316 Compact...SOS

PostPosted: Sun 06. Feb 2011 14:21
by Jón Ragnar
Felgur skakkar?

Re: Stýrisskjálfti í 316 Compact...SOS

PostPosted: Sun 06. Feb 2011 14:59
by birkire
hvenær byrjaði þetta ?

hljómar eins og snjór fastur i felgunum

Re: Stýrisskjálfti í 316 Compact...SOS

PostPosted: Sun 06. Feb 2011 15:52
by Alpina
birkire wrote:hvenær byrjaði þetta ?

hljómar eins og snjór fastur i felgunum


BINGO