hvernig bíll? ef e36 þá heitir þetta hægagangsmótor og bílinn hættir líklegast að ganga lausagang ef þú sleppir honum, auglýstu bara hér eftir slíkum ef hann er ónýtur, annars kannski tb eða bogl
Þessi rofi hefur þann tilgang að hleypa lofti inná vélina þegar bíllin er í lausagangi. Þegar þú stígur á inngjöf lokast þessi rofi og loftið flæðir í gegnum inngjafarspjaldið í staðinn.
ef þú sleppir honum og lokar slöngunni fær vélin annaðhvort ekki loft í hægaganginum (og þá drepst á bílnum) eða ef þú hefur slönguna opna þá fær bíllin of mikið loft og gengur illa.
Benedikt Guðmunds. 615-2630 The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01