Page 1 of 1

E46 320D ÚTLEIÐSLA!

PostPosted: Fri 28. Jan 2011 00:34
by ViggiRS
Kvöldið

Er að berjast við útleiðslu í bílnum og klárar hann 100 amp rafgeymi á örfáum tímum - Ég á pantaðan tíma hjá Eðalbílum en var að spá hvort þið vissuð um einhverja aðra snillinga í svona rafmagnsmálum - Er með annan 100 ah til að gefa alltaf start en ég þarf að gefa bílnum 2-4 sinnum á dag start. Samt er ég með rafgeyminn í bílnum í hleðslu á næturna......

Hef varla þolinmæði í að bíða eftir eðalstrákunum en enda þar ef ekkert hefur gerst á meðan

Re: E46 320D ÚTLEIÐSLA!

PostPosted: Sat 29. Jan 2011 02:12
by Axel Jóhann
Sælir, útleiðsla er alltaf leiðinlegt vandamál, ég myndi bara aftengja geyminn og hinkra eftir því að þeir í eðalbílum geti kíkt á þetta hjá þér, þú átt á hættu að skemma rafgeyminn ef þú heldur áfram að nota hann. Það er svakalega erfitt að segja til um nákvæmlega hvað þetta gæti verið án þess að yfirfara bílinn hjá þér.

Re: E46 320D ÚTLEIÐSLA!

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 21:09
by Lindemann
en ertu viss um að geymirinn sé ekki bara orðinn slappur?

Re: E46 320D ÚTLEIÐSLA!

PostPosted: Mon 31. Jan 2011 21:39
by ViggiRS
Hann er vikugamall (hinn var 3 vikna)....Þetta er eitthvað meira en svoleiðis...Er að fara til Eðalbíla á miðv. svo að þetta kemur í ljós
Hélt að þið vissuð um einhverja sem er snillingar í þessu útleiðslurugli