Page 1 of 1

E39 með M sport suspencion

PostPosted: Wed 26. Jan 2011 14:12
by Orri Þorkell
það er alltaf leiðinda bank þegar það kemur minnsta hossa, kemur greinilega báðumegin. er búin að skoða spyrnur og spyndla og það er greinilega spyndill farinn hægra megin. svo tók ég eftir að hlífarnar á dempurunum eru rifnar frá þannig þær lafa bara niður en nokkuð viss um að það er ekki að búa til þetta bank. er eitthvað fleira sem ég ætti að skoða?

Re: E39 með M sport suspencion

PostPosted: Wed 26. Jan 2011 14:13
by Orri Þorkell
spurning um að skipta bara um fóðringar í öllum spyrnum

Re: E39 með M sport suspencion

PostPosted: Wed 26. Jan 2011 17:33
by íbbi_
það kemur leiðinda bank í bílinn þegar spindilkúlurnar eru farnar.. var einmitt að aka E39bíl fyrir kunningja sem heggur og glamrar í öllum holum og hraðahindrunum, og það var ekkert að sjá annað en ónýta spindilkúlu, án þess að ég ætli að fullyrða neitt um þinn bíl,

en það er annars ekkert að gera nema fara yfir spindla/spyrnur/fóðringar/boddýpúða og alla rununa, og ef ekkert finnst sem getur útskýrt þetta er hægt að setja bílin á 4póstalyftu og fá félaga til að hossa honum og renna með hlustunarpípu (grínlaust.. eins og maður sér lækna með) yfir það sama, hljómar kannski fáránlega en með þessari aðferð fann ég orsök sem var búinn að hrista hjá mér stýrið á milli 80-100 heillengi og ég ætlaði bara ekki að finna

Re: E39 með M sport suspencion

PostPosted: Wed 26. Jan 2011 17:47
by Orri Þorkell
ok takk fyrir þetta, sá enga hreyfingu á spindilnum vinstra megin þannig ég keypti spyndil hægra megin sem var hreyfing á, sjáum hvernig þetta kemur út þegar ég skipti um hann