Page 1 of 1

"Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 18:11
by geirisk8
Ég viðurkenni að ég var að læra hvað "Rest" takkinn, sem er staðsettur í miðstöðinni á bílnum, gerir. Ég veit ekki alveg í hvaða bílum þetta er en allavega í e39 og eflaust mörgum fleirum.

Ég var búinn að keyra á e39 í nokkur ár áður en ég lærði hvað þessi takki gerir en nú þegar ég veit þá get ég ekki sagt annað en að þetta sé snilldartakki!

Tökum dæmi, það er hávetur og skítkalt úti. Þú þarft að skjótast aðeins úr bílnum í nokkrar mínútur en vilt ekki hafa hann í gangi, en samt viltu ekki að hann verði aftur kaldur. Þar kemur "Rest" takkinn inn.

Gefið að vélin sé orðin heit, þá geturðu drepið á bílnum, en áður en þú svissar alveg af þá ýtirðu á "rest" takkann. Síðan tekurðu lyklana, læsir bílnum og á meðan þú ert frá þá heldur bíllinn hitanum inni stöðugum.

Hversu margir vissu þetta ekki ? Kannski er ég algjör auli að hafa ekki vitað þetta en þessi fídus er sniðugur!

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 18:29
by kalli*
Sem nýr e39 eigandi þá er þetta mjög fræðandi að vita, er einmitt með svona takka. :alien:

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 18:32
by SteiniDJ
Vissi þetta og nota þetta ansi mikið!

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 19:15
by Astijons
ófullnægjandi upplýsingar!

Hvernig virkar þetta eiginlega?

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 19:18
by SteiniDJ
Astijons wrote:ófullnægjandi upplýsingar!

Hvernig virkar þetta eiginlega?


Dreptu á bílnum. Ýttu á Rest. Farðu út úr bílnum og komdu inn aftur eftir korter og hann verður alveg jafn heitur og hann var þegar þú fórst.

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 19:37
by Astijons
SteiniDJ wrote:
Astijons wrote:ófullnægjandi upplýsingar!

Hvernig virkar þetta eiginlega?


Dreptu á bílnum. Ýttu á Rest. Farðu út úr bílnum og komdu inn aftur eftir korter og hann verður alveg jafn heitur og hann var þegar þú fórst.


veit það enn hvernig er það hægt?
og hvað virkar þetta lengi?

edit:
found it
http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=870256

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 19:41
by SteiniDJ
Astijons wrote:
SteiniDJ wrote:
Astijons wrote:ófullnægjandi upplýsingar!

Hvernig virkar þetta eiginlega?


Dreptu á bílnum. Ýttu á Rest. Farðu út úr bílnum og komdu inn aftur eftir korter og hann verður alveg jafn heitur og hann var þegar þú fórst.


veit það enn hvernig er það hægt?
og hvað virkar þetta lengi?

edit:
found it
http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=870256


Jebb, TL;DR - Notar vélarhiti.

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 19:42
by Astijons
pretty cool stuff...

Re: "Rest" takki í miðstöðinni, fyrir þá sem ekki vita..

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 19:52
by Mr. Jones
Getur líka látið hann kæla sig á sumrin á ákveðnum tímum