Page 1 of 2

Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Tue 25. Jan 2011 11:12
by SteiniDJ
Sælir,

Er farinn að halda að MAF skynjararnir mínir eru ekki eins góðir og þeir eiga að vera og langar að mæla þá. Hef heyrt um aðferð sem notar mælaborðið til þess að mæla virkni þeirra (en það er dautt hjá mér, þannig no go þar) eða OBD-II scan tool. Á einhver svoleiðis sem getur hjálpað mér með þetta við tækifæri?

Og, ef þeir reynast vera lélegir þá langar mig að prófa að þrífa þá. Tutorial sem ég fann á M5Board mælir með Simple Green All-Purpose Cleaner, en ég veit ekki um neitt sambærilegt hér heima. Hafið þið hugmynd um hvað hægt væri að nota?

Kv, Steini

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Thu 27. Jan 2011 23:32
by IngóJP
Ekkert vit í því að þrífa þetta ef þetta virkar þá er það fyrsta korterið búið. Eðal Bjarki talaði um að nota einhverja RR skynjara þarf bara að svappa þeim yfir í orginal húsið

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Fri 28. Jan 2011 00:35
by Lindemann
annars er helst að þrífa þetta með carb cleaner eða jafnvel brake cleaner...........stundum virkar það í einhvern tíma, stundum ekki.

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Fri 28. Jan 2011 01:33
by ömmudriver
Lindemann wrote:annars er helst að þrífa þetta með carb cleaner eða jafnvel brake cleaner...........stundum virkar það í einhvern tíma, stundum ekki.

Ég hef notað Brake cleaner(Carb cleaner skilur eftir sig fitu) á loftflæðiskynjaran og ICV í blæjunni minni með góðum árangri :)

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Fri 28. Jan 2011 14:40
by sosupabbi
Mér var sagt að þrífa þá BARA með Electronic Contact Cleaner, myndi fara varlega í allt annað sérstaklega þar sem það hefur verið talað um að olía í einhverjum síum drepi þá þá ætti vitlaus efni alveg að geta það líka.

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Fri 28. Jan 2011 16:44
by slapi
Ég held að þetta væri gott verkefni fyrir Mythbusters að þrífa MAF að þeirri gerð sem þú ert með Steini.

Hef ekki trú á þessu

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Fri 28. Jan 2011 16:47
by bimmer
Þetta virkar ekki nema í smástund. Gleymdu þessu.

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sat 29. Jan 2011 15:47
by SteiniDJ
Okay, þessu hefur verið gleymt. Get fengið sett af nýjum skynjurum á 52.000 krónur (komið heim með afslætti f. M5Board) hjá Bimmerzone. Fer að skoða það bara.

Væri samt gaman að láta mæla virknina á þeim áður en ég skipti þeim út. Skv. því sem ég hef lesið þarf að keyra bílinn með tölvu tengda og þá er hægt að sjá eitthvað með galdrabrögðum og öðru slíku hvort þeir séu að vinna vinnuna sína. Ætli það sé hægt að láta Eðalbíla gera það?

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sat 29. Jan 2011 16:13
by slapi
]
SteiniDJ wrote:Okay, þessu hefur verið gleymt. Get fengið sett af nýjum skynjurum á 52.000 krónur (komið heim með afslætti f. M5Board) hjá Bimmerzone. Fer að skoða það bara.

Væri samt gaman að láta mæla virknina á þeim áður en ég skipti þeim út. Skv. því sem ég hef lesið þarf að keyra bílinn með tölvu tengda og þá er hægt að sjá eitthvað með galdrabrögðum og öðru slíku hvort þeir séu að vinna vinnuna sína. Ætli það sé hægt að láta Eðalbíla gera það?

Jöbb

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:23
by Alpina

Láttu bara Mr.X..... maf delete

eitt besta uppgrade ásamt smá tjúnni í leiðinni

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:28
by SteiniDJ
Sagði mér lítil fluga í gær að einhver hafi tekið sig til og skipt út góðum MAF sensorum í þessum bíl fyrir lélegri, þegar hann var á einhverri bílasölu... :lol:

@Slapi, snilld. Ég hringi í ykkur eftir helgi!

@Alpina. Alpha-N, ekki satt? Hef lesið eitthvað um það og er ekkia lveg viss. Trúi því vel að þetta virki vel á kappakstursbraut, en þetta sé harðkóðað inn í bílinn og mun hann ekki alltaf virka eins og hann á að virka.

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:45
by slapi
Ef ég man rétt ætti h/ Mafinn að vera nýr......

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:46
by SteiniDJ
slapi wrote:Ef ég man rétt ætti h/ Mafinn að vera nýr......

Ok, ættum við ekki að geta séð það á mælingunni?

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:48
by slapi
Besta lausnin væri að lesa pn á honum.

Re: Að mæla virkni MAF skynjara og að þrífa þá

PostPosted: Sun 30. Jan 2011 12:50
by Alpina
keyptu bara VW maf,, hann er alveg eins

ættir að geta fundið það á netinu,, MIKLU ódýrari