Page 1 of 1

Hitavandamál

PostPosted: Tue 18. Jan 2011 19:54
by Dabbikxf
Er í vandræðum með bílinn hjá mér, er búinn að vera að hitna undafarið, en fór með hann á verkstæði og þeir skiptu um vatnskassa og var hann þá í lagi í 2 vikur og núna aftur orðin eins..

hann hitnar bara á lágum snuningum en ef ég gef honum inn kælir hann sig.
Hann fyllir sig líka af lofti..
einhverjar hugmyndir hvað þetta gæti verið?

Re: Hitavandamál

PostPosted: Wed 19. Jan 2011 00:11
by Axel Jóhann
Ónýt heddpakkning/hedd.

Re: Hitavandamál

PostPosted: Wed 19. Jan 2011 14:46
by Dabbikxf
djöfull var að vona að ég væri að sleppa betur!

Re: Hitavandamál

PostPosted: Wed 19. Jan 2011 18:45
by BjarkiHS
Axel Jóhann wrote:Ónýt heddpakkning/hedd.


Pottþétt ef hann er að blása lofti útí vatnsgang :thdown:

Re: Hitavandamál

PostPosted: Wed 19. Jan 2011 19:03
by slapi
Aðeins að slaka á Axel , menn verða að passa sig hvað þeir segja ða netinu og alhæfa um bilanir

Re: Hitavandamál

PostPosted: Thu 20. Jan 2011 01:11
by Axel Jóhann
Þetta var nú ekkert alhæfing sem slík, hann bað bara um uppástungur. En auðvitað er eina vitið að láta einhvern kíkja á þetta hjá þér. :) Myndi bara rúlla við hjá Eðalbílum, þeir eru sanngjarnir og færir.

Re: Hitavandamál

PostPosted: Sat 22. Jan 2011 21:46
by Dabbikxf
jamm kominn með mann til að líta á þetta, ætli veskið fái ekki aðeins að léttast núna :(

Re: Hitavandamál

PostPosted: Sat 22. Jan 2011 21:54
by JonHrafn
hedd, heddpakking var einmitt að fyrsta sem manni datt í hug, þótt slapi hafi ekki verið sáttur við það :)

Lentum í því með hiluxinn að það var komin sprunga í heddið og hann pústaði gegnum vatnsgangin út um yfirfallið á vatnskassanum . . . :thdown:

Re: Hitavandamál

PostPosted: Sun 23. Jan 2011 09:26
by slapi
Ég er ekkert að segja að það sé ekki möguleiki.
Það sem ég er ekki sáttur við að menn gefa einhver ráð sem fela í sér engar skýringar samanber
Axel Jóhann wrote:Ónýt heddpakkning/hedd.



Ég er bara að minna menn á að fólk getur tekið ýmislegt ráðum mjög bókstaflega og ég hef gert við fyrir menn sem hafa verið afvegaleiddir af ýmsum frændum og netfræðingum sem hafa ekki einu sinni séð bílinn með tilheyrandi kostnaði $$$