Page 1 of 1
Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Mon 10. Jan 2011 18:16
by BMWE39
Ég var að spá mér vantar afturljós á BMW E39 525 2003 hvað ætti maður að kaupa var held að spá í að flytja inn t.d af ebay endilega sendið mér ef þið hafið reynslu af einhverjum ljósum.
Takk fyrir.
Re: Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Tue 11. Jan 2011 18:33
by BMWE39
Ekki neinn?
Re: Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Thu 13. Jan 2011 11:23
by Danni
Fyrir 2003 árgerðina myndi ég nú bara mæla með facelift ljósum áfram. Hvers vegna vantar þig ljós?
Annars er hægt að fá alveg frá oem pre-facelift, sem er bara með venjulegum perum allstaðar og er ekki clear, uppí aftermarket led ljós sem eru clear og nánast undantekningarlaust með 3 led rendur fyrir stöðuljós og síðan oem facelift ljós sem eru að mínu mati þau einu sem líta vel út af clear ljósunum. Þau eru með 4 led rendur, en eru mjög dýr.
Re: Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Thu 13. Jan 2011 17:40
by BMWE39
Það komst vökvi í tengið og það ryðgaði fast og finnarnir komu með tenginu þannig ég get ekki tengt þetta án þess að lóða og það er ekki mikið pláss til þess.
Re: Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Thu 13. Jan 2011 17:51
by IceDev
BMWE39 wrote:Það komst vökvi í tengið og það ryðgaði fast og finnarnir komu með tenginu þannig ég get ekki tengt þetta án þess að lóða og það er ekki mikið pláss til þess.
Blessaður, notar ekkert Finna með þessu tengi. Svíar eru mun betri
Re: Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Thu 13. Jan 2011 18:37
by BMWE39
HEHE segðu þetta átti að vera pinnarnir ég var lengi að fatta þetta :p
Re: Hvaða afturljós hafa menn verið að kaupa

Posted:
Sun 16. Jan 2011 08:10
by Danni
Bara græja annað tengi.. finna af tjónabíl eða eitthvað.
Það er t.d. einn E39 facelift á partasölu í Keflavík sem væri hægt að klippa þetta úr, splæsa síðan nýja tengið við gamla rafkerfið.