bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Blettun https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=4893 |
Page 1 of 1 |
Author: | poco [ Mon 08. Mar 2004 09:45 ] |
Post subject: | Blettun |
Jæja ég þarf að bletta bimman minn. Ég gerði þetta nokkrum sinnum fyrir mörgum mörgum árum og ætla ekki að þykjast vera með þetta á hreinu lengur ![]() Það eru tveir ljótir grjótkast-punktar(rið byrjað að myndast) og svo týpísk riðmyndun á jaðrinum á skottlokinu ![]() Spurningin er hvernig er best að gera þetta, með hverju og hvar fær maður það fyrir skásta prísinn. Heill sé bílamálurum því þeir munu landið erfa. |
Author: | Chrome [ Mon 08. Mar 2004 21:18 ] |
Post subject: | hmm... |
hmm...ég veit allavega að þegar ég var í toyotu bransanum gat maður fengið svona "tuch-up" dollur með lakki í sama lit og bílinn...þannig var að marr bara fór yfir blettina með fínum sandpappír (ég er dundari ![]() ![]() |
Author: | poco [ Tue 09. Mar 2004 15:02 ] |
Post subject: | |
Jamm. Ég þurfti að láta gera við bílinn í haust hjá verkstæðinu sem þjónustar B&L (man ekki hvað það heitir) og bað um að fá smá lit í dollu. En neeeei, þeir sögðu mér að ég þyrfti bara að kaupa mér lakk hjá e-u fyrirtæki sem ég man ekki hvað heitir. En var ekki e-ð fyrirtæki sem seldi svona touch-up penna??? |
Author: | flamatron [ Tue 09. Mar 2004 16:27 ] |
Post subject: | |
þú getur örruglega fengið í Orkunni uppa höfða, dollu með lit, og keypt hja þeim pensil.. |
Author: | Bjarki [ Tue 09. Mar 2004 18:38 ] |
Post subject: | |
Bílanaust, Orkan eða Íslakk. Þú þarft að ná ryðinu í burtu, lítill vírbursti, dúkahnífur eða sanpappír ef ekki allt. Svo setja margir rust-stop í sárið. Spartlar í þetta ef þarf. Svo er það fylligrunnur yfir það bara með pensli ef þetta er lítið. Sumir vatnspússa svo lokaumferðina. Svo er það bara liturinn á þetta, hann er sanseraður þannig þú færð aldrei sömu áferðina en það er líkt og betra en ryðið. Svo þarftu að setja glæru yfir þetta líka. Hana má svo pússa niður með 2000 pappír og slétta hana. Þetta er svona að ég held nokkurnvegin ferlið. Annars eru þeir líka hjálplegir í þessum verslunum. Svo er þetta bara æfing líka. |
Author: | GunniT [ Thu 11. Mar 2004 23:00 ] |
Post subject: | |
Það er líka hægt (eða var allavega hægt) að fá lítið kitt í bílanaust sem inniheldur pensil, og lítin glerbursta sem er algjörlega nauðsynlegt í þetta.. |
Author: | poco [ Fri 12. Mar 2004 08:18 ] |
Post subject: | |
Takk ég athuga þetta |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |