Page 1 of 1

BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Sun 09. Jan 2011 22:35
by Hreiðar
Topic segir allt. Virkilega erfitt að henda honum í gang ef það er minna en -3°c. Einhver sem veit hvað veldur því?

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Sun 09. Jan 2011 22:46
by JonHrafn
Fyrsta sem manni dettur í hug er glóðakerti. Hitt er vatn í hráolíusíunni. Snýr hann vélinni bara og hrekkur síðan í gang á endanum eða virðist hann vera fá smá slurp meðan þú ert að starta? Prófaðu að tvíhita áður en þú startar, ef það virkar betur þá eru þetta líklegast glóðakertin.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Sun 09. Jan 2011 22:50
by bjornod
Hreiðar wrote:Topic segir allt. Virkilega erfitt að henda honum í gang ef það er minna en -3°c. Einhver sem veit hvað veldur því?


Lélegur rafgeymir?

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Sun 09. Jan 2011 22:55
by Hreiðar
JonHrafn wrote:Fyrsta sem manni dettur í hug er glóðakerti. Hitt er vatn í hráolíusíunni. Snýr hann vélinni bara og hrekkur síðan í gang á endanum eða virðist hann vera fá smá slurp meðan þú ert að starta? Prófaðu að tvíhita áður en þú startar, ef það virkar betur þá eru þetta líklegast glóðakertin.


Já fer í gang í hálfa sekúndu og deyr. Ég hef prófað að tvíhita. Það virkar ekkert betur. Stundum heppnast að starta honum í 2. skiptið og stundum í 20. skipti.

bjornod wrote:
Hreiðar wrote:Topic segir allt. Virkilega erfitt að henda honum í gang ef það er minna en -3°c. Einhver sem veit hvað veldur því?


Lélegur rafgeymir?


Nei, það held ég ekki.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 17:10
by JonHrafn
Lenti í þessu á hiluxinum í -11 um dagin, snarhætti eftir að ég setti ísvara ofan í það sem var eftir af tankinum. ísvarinn "eyðir" rakanum úr kerfinu.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 17:19
by ///MR HUNG
330d hjá mér hefur látið svona síðan ég gaf honum góðann dass af bensíni í fyrravetur :lol:

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 17:20
by JonHrafn
úbbs hehe

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 17:54
by Hreiðar
Bíllinn er keyrður um 122.000 km. Eru ekki glóðakertin eða eitthvað byrjað að slaka?

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 18:18
by JonHrafn
Minn er í 175þús, þau neista vel.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 18:22
by BjarkiHS
JonHrafn wrote:Minn er í 175þús, þau neista vel.


Nei, þau hitna.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 21:25
by JonHrafn
BjarkiHS wrote:
JonHrafn wrote:Minn er í 175þús, þau neista vel.


Nei, þau hitna.


Lítið mál að láta þau neista ... með smá vír :þ Hefði verið aðeins fagmannlegra að taka þau úr og viðnámsmæla þau.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 21:27
by slapi
Þarf ekki að taka þau úr til að viðnámsmæla þau.

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 22:10
by JonHrafn
Hvernig mæliru þau án þess að taka þau úr? Og hvert á viðnámið að vera ,, normal og lágmark?

Re: BMW 320d - erfiður í gang í frosti

PostPosted: Mon 10. Jan 2011 22:13
by slapi
Beint í toppinn á þau og niður á jörð
0,5-2,5 ohm.