Heyrðu framstuðarinn á e39 540 bílnum mínum er orðinn slappur og margoft hefur ökumaðurinn keyrt þannig að stuðarinn fari upp á gangstéttarkant og þegar hann bakkar þá brotnar hann. Þegar maður horfir framan á bílinn þá sést hvað neðsti hlutinn á stuðaranum er skemmdur og nær neðar en á að gera.
Anyways, to the point: Meðfram undirhluta stuðarans sé ég hangandi einhvers konar kapall/slanga sem liggur frá hægri til vinstri. Hann er svartur og sennilega alveg 1-2 cm sver. Þetta er mjúkt og ég er að spá hvað þetta væri ? Ég er hræddur um að þetta gæti verið eitthvað sem má alls ekki skemmast. Hvers konar kapall/slanga gæti verið að leynast þarna mjög neðarlega við stuðarann ?
Ps. Þetta er ekki m-stuðari.



